Innlent

Vopnin í eigu Vítisengla

Vopnin eru sögð vera í eigu Vítisengla. Mynd/ AFP.
Vopnin eru sögð vera í eigu Vítisengla. Mynd/ AFP.
Fjöldi vopna sem fannst í skógi nærri Hobro á Norður Jótlandi á föstudagskvöld er talinn vera í eigu meðlima vélhjólaklúbbsins Vitisengla. Danskir fjölmiðlar segja að lögreglan hafi fylgst með meðlimum Vítisengla frá því að vopnin fundust og tveir menn sem voru handteknir í gær tilheyri félagsskapnum.

Lögreglan á Norður Jótlandi rannsakar málið, en þar á bæ hafa menn ekki treyst sér til að staðfesta þessar upplýsingar. Börnin fundu vopnin í skógi á föstudag. Þau lágu undir dúk og virðist þeim hafa verið stolið í fyrra. Eftir að vopnin fundust sat lögreglan um staðinn og gat handtekið tvo menn, 25 og 29 ára gamla, þegar þeir komu að sækja vopnin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×