Bændasamtökin: Landbúnaðarskýrsla ekki fullnægjandi 15. júlí 2009 18:13
Bændasamtökin fagna birtingu skýrslu Hagfræðistofnunnar um hugsanleg áhrif á íslenskan landbúnað gangi Ísland í Evrópubandalagið samkvæmt tilkynningu. Þeir árétta þó að skýrslan sé ekki fullnægjandi í ljósi þess að hún kannar ekki heildstæði áhrif á aðildar að ESB á byggð, búsetu og atvinnulíf í landinu. Í tilkynningunni segir: Um 10.000 manns á vinnumarkaði starfa við íslenskan landbúnað og úrvinnslu og þjónustu honum tengdum. Í skýrslu Hagfræðistofnunar er ekki gerð tilraun til þess að meta áhrif á þessa þætti en slíka úttekt hlýtur að þurfa að gera áður en ákvörðun er tekin. Þá fagna Bændasamtökin að skýrslan hafi verið birt og hægt sé að ræða málið á upplýstum grundvelli. Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan: Bændasamtökin fagna að fengist hefur að birta skýrslu sem er tilraun til úttektar á áhrifum ESB-aðildar á íslenskan landbúnað. Skýrslan staðfestir í meginatriðum málflutning og rök samtakanna sem haldið hefur verið fram í ESB-umræðunni síðustu misseri. Bændasamtökin hafa bent á að skoða þurfi með heildstæðum hætti áhrif aðildar að ESB á byggð, búsetu og atvinnulíf í landinu. Um 10.000 manns á vinnumarkaði starfa við íslenskan landbúnað og úrvinnslu og þjónustu honum tengdum. Í skýrslu Hagfræðistofnunar er ekki gerð tilraun til þess að meta áhrif á þessa þætti en slíka úttekt hlýtur að þurfa að gera áður en ákvörðun er tekin. Bændasamtökin fagna opinni og upplýstri umræðu og að upplýsingum sé ekki haldið leyndum sem gætu veikt málflutning þeirra sem vilja skilyrðislaust gerast aðilar að ESB. Upphlaup það sem varð í dag á Alþingi vegna málsins sýnir vel að aðildarumsókn að ESB þarf meiri og yfirvegaðri umræðu. Bændasamtökin minna á að þau hafa áður lagt til að báðum fyrirliggjandi þingsályktunartillögum verði hafnað. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands
Tengdar fréttir Innganga í ESB: Neytendur græða á kostnað landbúnaðastétta Afkoma svínabænda og kjúklingabúa mun verða verst úti gangi Ísland inn í ESB. Þetta kemur fram í skýrslu sem var unnin fyrir nefnd stjórnvalda og hagsmunaraðila af Hagfræðistofnun. 15. júlí 2009 17:58 Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira
Innganga í ESB: Neytendur græða á kostnað landbúnaðastétta Afkoma svínabænda og kjúklingabúa mun verða verst úti gangi Ísland inn í ESB. Þetta kemur fram í skýrslu sem var unnin fyrir nefnd stjórnvalda og hagsmunaraðila af Hagfræðistofnun. 15. júlí 2009 17:58