Innlent

Jólatré í Reykjavík hirt á nýju ári af sorphirðufyrirtækjum og íþróttafélögum

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Gámaþjónustan, Íslenska gámafélagið og íþróttafélög munu á nýju ári bjóða borgarbúum upp á þá þjónustu að hirða jólatré við heimili að hátíðunum loknum. Er þetta gert í samstarfi við Reykjavíkurborg.

Sorphirðufyrirtækin munu kynna fyrirkomulag sitt á næstu dögum. Íþróttafélögin sem hyggjast nota verkfnið til fjáröflunar starfsemi sinnar munu fara um hverfi borgarinnar með kerrur og bjóða fólki að flytja trén í endurvinnslu gegn gjaldi.

Flestir fara eina ferð um jólin á endurvinnslustöðvar Sorpu með ýmsar umbúðir, pakkningar utan um flugelda og annað sem til fellur. Jólatréð er eitt af því sem þarf að fara í endurvinnslu. Borgarbúar geta annað hvort farið sjálfir með jólatrén sín eða fengið þjónustu hjá sorphirðufyrirtækjum og íþróttafélögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×