Fabregas kom inn á sem varamaður og skoraði tvö Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. desember 2009 15:13 Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal-liðsins átti frábæra innkomu í leikinn. Mynd/AFP
Arsenal vann 3-0 sigur á Aston Villa í baráttu liðanna í 3. og 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal-liðsins, byrjaði á varamannabekknum en kom inn á og skoraði tvö mörk í seinni hálfleiknum. Fabregas skoraði glæsimark beint úr aukaspyrnu aðeins átta mínútum eftir að hann kom inn í leikinn í seinni hálfleik og gerði síðan seinna markið sitt níu mínútum fyrir leikslok eftir frábæra sendingu frá Theo Walcott. Arsenal-menn voru nærri því að skora í fyrri hálfleik og langbesta færi fyrri hálfleiksins fékk Eduardo Da Silva en hann náði laflausu skoti að marki eftir laglegan snúning í teignum. Cesc Fabregas kom inn fyrir Denilson á 57. mínútu og fiskaði sjálfur aukaspyrnuna sem hann skoraði úr átta míútum síðar. Fabregas meiddist um leið og hann skoraði seinna markið sitt og varð að fara af velli í kjölfarið. Abou Diaby innsiglaði síðan 3-0 sigur Arsnal með marki í uppbótartíma þegar hann fékk óáréttur að bera boltann upp að teignum og skora með laglegu skoti. Arsenal og Aston Villa voru með jafnmörg stig fyrir leikinn en Arsenal komst upp í 2. sætið með þessum sigri. Manchester United getur endurheimt annað sætið með sigri á Hull á eftir.
Mest lesið Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Fótbolti Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Enski boltinn Sjóðheit Ída Marín kveður FH Íslenski boltinn Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Fótbolti Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Íslenski boltinn Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Enski boltinn Þingkonan hlaut EM-brons eftir mikla spennu Sport Skipti tennisskónum út fyrir takkaskó og skoraði tvö í fyrsta leik Fótbolti Valur - KA | Í fallbaráttu og þurfa sárlega á sigri að halda Íslenski boltinn Fleiri fréttir Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Sjá meira