Gerir betur en Björk, Bubbi og Egill Ólafs 7. maí 2009 05:30 tómas tómasson Egill Ólafsson hefur verið sagður konungur hundrað platna listans en félagi hans úr Þursunum skýtur honum ref fyrir rass. „
Þetta er náttúrulega eins og maðurinn segir, allt eftir því hvernig á það er litið. En Maggi [Magnús Einarsson, útvarps- og tónlistarmaður] var eitthvað að skoða þetta, lét mig hafa listann og þá kom á daginn að ég hef komið við sögu á 19 af þessum plötum,“ segir Tómas Tómasson tónlistarmaður hógvær að vanda. Á tónlist.is hefur að undanförnu staðið yfir val á 100 bestu plötum Íslandssögunnar og 25. apríl síðastliðinn sló Mogginn því upp að Egill Ólafsson tengist ellefu þeirra og geri betur en Björk, Bubbi og Sigur Rós. Egill var af því tilefni í viðtali við Mogga og að vonum kátur með að teljast öflugastur íslenskra dægurtónlistarmanna. „Ég er bara alveg í skýjunum yfir þessu,“ sagði Egill. En þarna er vaðið yfir manninn sem skýtur öllum ofangreindum ref fyrir rass. Tómas segir aðspurður það orðum aukið að vaðið sé yfir sig af sínum gamla félaga í Stuðmönnum og Þursaflokknum. „Nei, nei, þetta var tilkynning frá tónlist.is. Egill er saklaust fórnarlamb í þessu – blásaklaus forsöngvari.“ Hann segist ekki ætla að bera ábyrgð á því hvort hann sé konungur hundrað laga listans, hefur ekki kannað það sérstaklega og bendir á að félagi sinn, Ásgeir Óskarsson, hafi verið afskaplega vinsæll í hljóðverum. „Þessar plötur eru mikið til frá sama tímabili. Golden Days hjá mér í upptökuverinu – án þess að ég sé að segjast hættur.“ Plöturnar sem Tómas hefur komið að ýmist sem hljóðfæraleikari, upptökumaður eða upptökustjóri eru eftirfarandi: Fjórar plötur Þursaflokksins, þrjár með Stuðmönnum, Í góðri trú með Megasi, Rokk í Reykjavík, Einu sinni var – vísnaplatan, Kona/Dögun/Fingraför með Bubba, Ímynd og Breyttir tímar með Egó, Bein leið með KK, Gling Gló Bjarkar, 1. plata Spilverksins og Álfar Magnúsar Þórs. - jbg
Mest lesið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Bylgjulestin fer norður á morgun Lífið samstarf Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Fleiri fréttir „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Sjá meira