Úrræði fyrir atvinnulaus ungmenni kynnt 18. desember 2009 06:00 Atvinnuleysi Atvinnuleysi hefur fjórfaldast á síðastliðnu ári og var skráð um átta prósent í nóvember.fréttablaðið/gva
Stefnt er að því að koma á fót margvíslegum úrræðum fyrir ungt, atvinnulaust fólk á næsta ári. Áætlað er að 1,3 milljörðum króna verði varið í verkefnið á næsta ári. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra kynnti í gær sérstakt átak ráðuneytisins í þeim efnum. 2.700 ungmenni á aldrinum sextán til 24 ára eru atvinnulaus um þessar mundir og hópurinn fer stækkandi. „Það sem einkennir þennan hóp er mjög stutt skólaganga,“ segir Árni Páll. Samkvæmt upplýsingum úr atvinnuleysisskrá eru sjötíu prósent atvinnulausra undir þrítugu aðeins með grunnskólapróf. Hlutfallið hjá atvinnulausum í heild er fimmtíu prósent. Árni Páll segir rannsóknir í öðrum löndum sýna að unga fólkið sé í gríðarlegri hættu á að lenda utan vinnumarkaðar til langframa, sé ekkert að gert. „Við teljum það skipta gríðarlega miklu að grípa inn í strax. Við höfum þess vegna lagt á það þunga áherslu að tryggja fjármagn til verkefna sem gera okkur kleift að mæta þörfum hvers og eins. Að hver og einn fái einstaklingsviðtal þar sem fundið er út hvað viðkomandi vill helst gera.“ Úrræðin sem um ræðir eru fjölbreytt. Gert er ráð fyrir því að allt að 450 manns geti komist að í framhaldsskólum landsins og jafn margir í starfsþjálfun og störf við verkefni hjá félagasamtökum, sveitarfélögum og fyrirtækjum. Þá ert gert ráð fyrir því að allt að 700 manns geti komist í nám á vegum símenntunarstöðva og frumgreinadeilda. Einnig er gert ráð fyrir um 400 nýjum plássum á vinnustofum og í endurhæfingar- og meðferðarúrræðum. Loks er gert ráð fyrir því að um 400 ný sjálfboðastörf skapist, og segir Árni Páll mikinn áhuga vera á því að nýta krafta atvinnulausra, meðal annars hjá Rauða krossinum og íþróttahreyfingunni. Hjá Rauða krossinum er stefnan sett á jafningjafræðslu, þar sem atvinnulausir ráðleggi öðrum í sömu sporum. Unnið hefur verið að verkefninu frá byrjun sumars og mun Vinnumálastofnun stýra því. „Það sem við erum að leggja upp með er mjög metnaðarfull aðgerð og til þess að þetta gangi þarf allt samfélagið að taka höndum saman, þetta er mikilvægt samfélagslegt verkefni. Fyrir hvern einstakling sem er bótaþegi út lífið er áætlað að kostnaður sé í kringum 300 milljónir starfsævina á enda. Það er því til mikils að vinna.“ thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Fleiri fréttir Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Sjá meira