Nour kemur aftur til landsins í kvöld 18. desember 2009 05:00 Nour meðan hann bjó í Reykjanesbæ Íraski flóttamaðurinn fór út með íslenskar krónur einungis og þurfti því að lifa spart í Aþenu. Hann hefur fengið að sofa í kirkju einni síðustu daga. Mynd/Víkurfréttir
Íraski flóttamaðurinn Nour Al-din Al-Azzawi snýr aftur til Íslands á ellefta tímanum í kvöld eftir tveggja mánaða dvöl í Grikklandi. Hann var sem kunnugt er sendur þangað á grundvelli Dyflinnarsamkomulagsins, við mótmæli Rauða krossins og ýmissa einstaklinga. Strax og Nour kom til Grikklands byrjuðu vinir hans á Íslandi að safna fyrir uppihaldi hans og hugsanlegri heimkomu. Helena Stefánsdóttir leikstjóri stofnaði fyrir hann reikning og söfnuðust hátt í fjögur hundruð þúsund krónur. Hún getur því borgað flugið til landsins. Á Grikklandi féll Nour frá umsókn sinni um pólitískt hæli, sem er mjög erfitt að fá, og bað þess í stað um að fá atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi. „Hann fær að vera hér á meðan á grundvelli þess hvað hann er ungur [fæddur 1990] og þar sem hann er búinn að mynda tengsl hér á landi. Hann á hér kærustu og er með vinnu," segir Helena Stefánsdóttir. Nour sjálfur segist feginn að fá að koma til Íslands, ekki sem hælisleitandi heldur sem frjáls maður. Hann hafi farið til margra Evrópulanda, en á Íslandi vilji hann vera. Hér sé hans heimili, atvinna og vinir. Spurður um dvölina í Grikklandi segir Nour: „Nei, ég hef ekki verið í flóttamannabúðum. Fyrstu nóttina stungu þeir mér í fangelsi á flugvellinum og töluðu við mig í fimm mínútur daginn eftir. Ég sagði þeim að ég vildi ekki vera hælisleitandi í Grikklandi. Þeir létu mig þá skrifa undir eitthvað á grísku og sögðu mér að ég væri frjáls. Síðan hef ég verið á götunni, og svaf til dæmis í kirkju í nótt." Kristrún Kristinsdóttir, skrifstofustjóri í dóms- og mannréttindaráðuneytinu, segir máli Nours lokið hjá ráðuneytinu og hann sé nú alfarið á vegum Útlendingastofnunar. „Ráðuneytið kemur ekkert að þessari ákvörðun, enda er það kærustig í slíkum málum og skiptir það sér ekki af þeim, til að viðhalda hlutleysi sínu," segir hún. Ekki sé því hægt að tala um stefnubreytingu í málefnum flóttamanna, í það minnsta ekki hjá ráðuneytinu. Rósa Dögg Flosadóttir, settur forstjóri Útlendingastofnunar, neitar því einnig að um stefnubreytingu sé að ræða, að því leytinu til að Nour fái að dvelja hér á meðan umsóknin er til umsagnar. „Þetta kemur alloft fyrir. Það er heimild í lögum til þess að víkja frá meginreglunni um að umsækjandinn skuli dveljast erlendis á meðan umsókn hans er til skoðunar. Það var óskað eftir undanþágu frá þessu og á þá ósk var fallist," segir hún. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira