Kaupmannahafnarráðstefnu lýkur í dag 18. desember 2009 11:58 Svandís Svavarsdóttir hélt lokaræðu sína á ráðstefnunni í gærkvöldi.
Loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn lýkur í dag um klukkan þrjú. Þótt ekki sé búist við að gengið verið frá alþjóðlegum lagalegum skuldbindinum um losun gróðurhúsalofttegunda í framtíðinni er vonast til að pólitísk samstaða náist um hvert viðræður skuli stefna á næstu árum. Þjóðarleiðtogar stærstu ríkja heims sitja nú á rökstólum í Kaupmannahöfn. Mjög misvísandi fréttir berast af því hvaða lending verði á málinu. Hafdís Gísladóttir aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra segir að þótt afar ólíklegt sé að gengið verði að lagalegum skuldbindingum sé það von manna á ráðstefnunni að hún verði til þess að sameiginleg markmið um næstu skrefi í málinu verði til. Í ræðu sem Svandís flutti fyrir hönd Íslands í nótt kom meðal annars fram að Íslendingar eru tilbúnir til að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda eða um allt að 30 prósent í samvinnu við Evrópusambandið. Þá benti Svandís á þá ógn sem losun gróðurhúsalofttegunda hefði í för með sér fyrir höfin. Súrnun hafanna væri dulinn vandi, sem gæti haft alvarleg áhrif á lífríki hafsins, sem væri áhyggjuefni fyrir land sem byggði afkomu sína á sjávarútvegi. Hún benti auk þess á nú þegar sæju endurnýjanlegir orkugjafar Íslendingum að fullu fyrir rafmagni og hita og stefnt væri að því að hætta notkun jarðefnaeldsneytis fyrir bíla og skip. Svandís kvaðst svo sérstaklega ánægð með áhersluna sem er komin á aðkomu beggja kynja, sem íslensk stjórnvöld höfðu talsverð áhrif á að kæmist inn í samningsdrögin sem lágu fyrir ráðstefnunni.
Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Fleiri fréttir Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku Sjá meira