Kosið um lagabreytingu í Framsóknarflokknum í dag 17. janúar 2009 12:23 Þeir Páll Magnússon og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eru báðir í framboði til formanns flokksins.
Það skýrist í dag hvort formaður Framsóknarflokksins verður kosinn eftir núgildandi lögum flokksins eða nýjum lögum sem samþykkja þarf í dag. Mikil spenna ríkir um formannskjörið og úrslitin gætu orðið tvísýn. Ef kosið verður eftir nýjum lögum þarf formaður að hljóta yfir 50 prósent atkvæða annars vinnur sá sem fær flest atkvæði. Fimm eru í framboði til embættis formanns Framsóknarflokksins en kosið verður í embættið á morgun. Þeir sem bjóða sig fram eru Sigmundur Gunnlaugsson skipulagshagfræðingur, Höskuldur Þórhallsson alþingismaður, Páll Magnússon bæjarritari í Kópavogi, Jón Vigfús Guðjónsson sjómaður og Lúðvík Gizurarson lögmaður. Allir frambjóðendurnir að Lúðvíki undanskyldum taka þátt í kappræðum á flokksþingi Framsóknarflokksins í hádeginu. Það er sjaldgæft að fleiri en einn sækist eftir því að verða formaður Framsóknarflokksins, en það gerðist þó 2006 þegar Siv Friðleifsdóttir keppti við Jón Sigurðsson um embættið. Núgildandi lög flokksins gera ráð fyrir að sá sem hlýtur flest atkvæði í formannskjöri teljist réttkjörinn. En fyrir flokksþinginu nú liggja tillögur um lagabreytingar, þar sem m.a. er gert ráð fyrir að frambjóðandi þurfi að fá yfir 50 prósent atkvæða til að ná kjöri. Nái enginn því skuli kosið aftur milli þeirra tveggja efstu. Almennt er talið að þeir Sigmundur, Höskuldur og Páll eigi mestan möguleika á að ná kjöri en ómögulegt virðist að segja til um hver þeirra nýtur mestrar hylli Framsóknarmanna. Þannig munu margir ákveða sig eftir kappræðurnar nú í hádeginu. Stefnt er að því að flokksþingið afgreiði lagabreytingar í dag, þannig að frambjóðandi verði að ná yfir 50 prósentum atkvæða til að ná kjöri en takist það ekki, gæti verið lítill munur á þeim sem verður formaður og næsta manni eða mönnum. Áður er kappræðurnar hefjast klukkan hálf eitt, ætla Framsóknarmenn að heiðra Guðna Ágústsson, sem sagði af sér formennsku og þingmennsku fyrir flokkinn í nóvember síðast liðnum, eftir átakafund í miðstjórn flokksins. Guðni er yfirlýstur andstæðingur Evrópusambandsaðildar, en flokksþingið samþykkti með miklum meirihluta atkvæða í gær, að hefja skuli viðræður um aðild að sambandinu eftir samþykkt Alþingis þar að lútandi.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Sjá meira