Drekkur bjór og reykir í gjörningi 2. júní 2009 07:00 Gjörningur og skúlptúr Páll Haukur mun sitja fyrir á sundskýlunni næstu mánuðina, reykjandi og drekkandi bjór á meðan Ragnar málar af honum olíumálverk. „
Fyrir Íslending eins og mig er frekar heitt. Það er búinn að vera þrjátíu stiga hiti síðustu daga og stefnir víst í brjálað sumar,“ segir Páll Haukur Björnsson, sem er staddur í Feneyjum með Ragnari Kjartanssyni listamanni, fulltrúa Íslands á Feneyjatvíæringnum. Páll vinnur með Ragnari að sýningu hans The End sem stendur yfir í sex mánuði og er einn liður verksins gjörningur þar sem Ragnar málar olíumálverk af Páli sitjandi við síki, drekkandi bjór og reykjandi sígarettur í sundskýlu einni fata. Aðspurður segir Páll verkið vera hálfgerðan skúlptúr. „Við miðum við að ná einu málverki á dag, en senan stækkar alltaf og stækkar og það fyllist allt af bjórflöskum, málverkum og sígarettustubbum. Þetta er rosalega langt og á örugglega eftir að taka heilan helling á, en þetta er rosalega spennandi,“ útskýrir Páll og segir þá félaga hafa verið önnum kafna frá því að þeir komu til Feneyja í síðustu viku. „Þetta er búin að vera hörkuvinna að mála veggi, smíða og setja upp vídeóinnsetninguna, svo við höfum ekki ennþá náð að upplifa týpíska Feneyja-sumarfrísstemningu. Það er rosa spenna og stress í mannskapnum núna fyrir opnuninni, en það verður foropnun 3. júní fyrir blaðamenn og svo verður tvíæringurinn opnaður með öllum herlegheitunum 6. júní fyrir almenningi,“ segir Páll. Sýningin stendur yfir til 22. nóvember.- ag
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Fleygt út í vatn af flóðhesti Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Fleiri fréttir Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Fleygt út í vatn af flóðhesti Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Sjá meira