Sakaðir um kosningasvindl 2. júní 2009 06:00 Sumir telja að Kris Allen sé ekki verðugur sigurvegari American Idol og að kosningasvik hafi tryggt honum sigurinn.
Stjórnendur American Idol hafa vísað á bug ásökunum um að Kris Allen hafi unnið keppnina með aðstoð kosningasvika. Styrktaraðili keppninnar, AT&T, sendi starfsmenn sína til tveggja stuðningspartía fyrir Allen í Arkansas-ríki þar sem þeir létu viðstadda fá sérstaka síma sem geta sent tíu SMS-skilaboð í einu. Einn aðdáandi Allens sagðist hafa kosið hann 10.840 sinnum með einum af símunum. Stjórnendur AT&T hafa viðurkennt að hafa sýnt aðdáendum Allens hvernig ætti að kjósa hann en segja að það hafi ekki haft nein áhrif á úrslitin. Stjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar Fox, sem sýndi keppnina, eru á sömu skoðun og segja að enginn hafi á nokkurn hátt haft áhrif á útkomuna. Bættu þeir við að sjálfstæðir aðilar fylgdust grannt með því að atkvæðagreiðslan færi fram á löglegan hátt. „Fox og framleiðendur American Idol eru handvissir um að úrslit keppninnar voru sanngjörn, nákvæm og traust,“ sagði í yfirlýsingu frá Fox. „Kris Allen er, án nokkurs vafa, bandaríska Idolið. Við höfum innan okkar raða sjálfstæðan þriðja aðila sem fylgist með því að kosningin fari rétt fram.“ Margir urðu undrandi þegar Kris Allen vann keppnina því andstæðingur hans, Adam Lambert, var talinn mun sigurstranglegri, enda töluvert betri söngvari. Þrátt fyrir vangavelturnar telur Lambert að engin brögð hafi verið í tafli við kosninguna. „Það eru alls konar reglur í gildi sem koma í veg fyrir svindl. Ég held ekki að það hafi verið samsæri í gangi,“ sagði hann. „Mér finnst verið að gera úlfalda úr mýflugu. Nokkrir starfsmenn létu fólk fá nokkra síma og sýndu því hvernig á að nota þá. Þetta var alls ekkert samsæri.“ Þess má geta að Clay Aiken, sem lenti í öðru sæti í Idol 2003, gagnrýndi Lambert fyrir skömmu fyrir skerandi rödd sína. Hinn 27 ára Lambert skaut þá föstum skotum til baka. „Ég þekki ekki Clay,“ sagði hann. „Það er gaman að hann sé kominn í sviðsljósið aftur, því hann var þar ekki áður. Ef hann vill nýta sér velgengni mína er það bara gott fyrir hann.“
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Bíó og sjónvarp Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Lífið samstarf Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Leikjavísir Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira