Innlent

Franska flugvélaflakið örugglega fundið

Brasilískur flughermaður að fara að búa sig undir flug.
Brasilískur flughermaður að fara að búa sig undir flug.

Brasilísk yfirvöld staðfestu nú í kvöld að flugvélabrakið úr frönsku vélinni væri fundið um 650 kílómetrum frá ströndum Brasilíu.

Það var varnamálaráðherrann Nelson Jobim sem staðfesti að flak farþegaþotunnar Air France hafði fundist. Talið er að 228 farþegar hafi látið lífið þegar hún hrapaði í sjóinn, þar á meðal er einn Íslendingur.

Það var brasilísk leitarvél sem kom auga á brakið sem markað fimm kílómetra slóða.

Flugvélin var á leiðinni frá Rio De Janeiro til Parísar þegar hún lenti í óveðri. Talið er að elding hafi grandað vélinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×