Kaup vekja upp deilur 2. júní 2009 05:00 Myndlist Löngu eftir sköpun Mountain - Fjalls - vekur verkið deilur meðal áhugamanna um listir og innkaupsverð á veigamiklum verkum samtímalistar. Sigurður Guðmundsson í Listasafni Íslands þar sem verkið verður vonandi sett upp sem fyrst. Fréttablaðið/þök
Á laugardag, fáeinum dögum eftir að tilkynnt var að Kristján Guðmundsson fengi fyrstur íslenskra myndlistarmanna aðalverðlaun Carnegie, komst Sigurður Guðmundsson í fréttir þegar Morgunblaðið greindi frá því að Listasafn Íslands hefði fest kaup á ljósmynd hans, Mountain eða Fjalli, sem er lykilverk á ferli hans frá áttunda áratugnum. Það var gallerí listamannsins hér á landi sem seldi verkið, sem er frumeintak af ljósmynd sem sýnir Sigurð sem lag í tilbúnu fjalli úr bókum, brauðum og torfi. Verkið hefur beina skírskotun í eitt vinsælasta myndefni íslenskrar myndlistar á síðustu öld sem þekktast er í verkum landslagsmálara á borð við Kjarval og Jón Stefánsson en er einnig þekkt í verkum næfista eins og Stefáns Jónssonar og Jóns föður hans. Fjallið hans Sigurðar var í hópi þeirra konseft-verka sem beindu kastljósi að honum á þessum árum upp úr 1970 og tryggðu honum eina af fyrstu sýningunum í Pompidou-safninu. Greiddar voru tíu milljónir fyrir verkið og er greiðslum dreift til tveggja ára. Af þeim tekur gallerí i8 um helming. Verðið þykir leikmönnum hátt ef marka má umkvartanir á vefnum um helgina, en er raunar heldur lágt miðað við mikilvægi verksins og stöðu þess í íslenskri myndlist. Er þá litið bæði til hins vestræna uppboðsmarkaðar og verka eftir listamenn sem komu upp á þessu tímabili og mótuðu stefnur í myndlist Vesturlanda eins og Kristján gerði, fáist þau á annað borð keypt. Verður Listasafn Íslands að teljast heppið að hafa hreppt hnossið og er það i8 til sóma að selja verkið hingað en ekki til annarra safna austan eða vestan hafsins. Kaupverðið telur helming ársframlags safnsins til listaverkakaupa en það hefur um árabil búið við svo veikan kaupmátt að það stendur safninu fyrir þrifum. Það verður því að mestu leyti að reiða sig á lán verka til að sýna þeim þúsundum innlendra og erlendra gesta sem það sækja.pbb@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira