Spurði hvort þingmenn væru blindir 9. mars 2009 15:34 Siv Friðleifsdóttir og Valgerður Sverrisdóttir.
Nokkuð snarpar umræður fóru fram á Alþingi í dag um dagskrá þingsins. Sjálfstæðismenn eru ósáttir með þau mál sem eru á dagskrá og vilja m.a. frekar leggja áherslu á frumvarp um uppbyggingu álvers í Helguvík en breytingar á stjórnarskrá. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins spurði hvort menn væru blindir á sama tíma og fyrrum menntamálaráðherra sagði hana senda vond skilaboð til suðurnesjamanna. Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði dagskrá þingsins í dag taka á öllu öðru en heimilinum og fyrirtækjunum í landinu eins og ríkisstjórnin lofaði þegar hún tók við völdum. Árni Páll Árnason þingmaður Samfylkingar sagði leikrit Sjálfstæðismanna sífellt verða skrítnara og það væri vilji sjálfstæðismanna að drolla og tefja málin, það væri ekki það sem fólkið í landinu vildi. Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins nefndi þrjú mál sem flokkurinn vill að verði sett í forgang. Nefndi hann þar atvinnuleysistryggingar, auknar heimildir saksóknara og frumvarp Iðnaðarráðherra um uppbyggingu álversins í Helguvík. Hann sagði flokkinn vilja geyma stjórnskipunarumræðuna þar sem vitað væri að hún tæki langan tíma og hin málin væru brýnni. Síf Friðleifsdóttir þingflokksformaður Framsóknarflokksins hvatti forseta til þess að halda einbeitingu sinni og tryggja framgang frumvarpsins sem snýr meðal annars að stjórnlagaþingi sem flokkurinn hefur barist fyrir. Hún spurði hversvegna flokkurinn vildi koma á stjórnlagaþingi og svaraði því sjálf til að það væri meðal annars til þess að gera leikreglurnar í samfélaginu yrðu skýrari og til þess að koma á meira lýðræði í samfélaginu. „Það er það sem fólkið í landinu er að kalla eftir. Eru menn blindir í þessum sal? Auðvitað á að klára þetta mál," sagði Sif og bætti því við að framganga sjálfstæðismanna væri verri en þegar Vinstri grænir voru í stjórnarandstöðu og töfðu framgang mála. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði að Sif væri að senda vond skilaboð til suðurnesjamanna með því að vilja frekar ræða þessi mál en atvinnuuppbyggingu í Helguvík. Nú fara fram óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Sjá meira