Innlent

Missa dvalarleyfið með vinnunni

Útlendingar frá löndum utan evrópska efnahagssvæðins sem missa vinnuna, missa dvalarleyfið hér á landi um leið. Það getur haft í för með sér að fólk sem greitt hefur skatta og skyldur hérlendis, á ekki rétt á félagsaðstoð. Erfið mál kunna að vera í uppsiglingu hjá þeim sem fest hafa rætur hérlendis.

Erlendir ríkisborgarar missa vinnuna hér á landi ekkert síður en innfæddir. Þeir sem koma frá löndum utan EES svæðisins eru þó í ívið verri málum en aðrir. Eftir fjögurra ára dvöl í landinu getur fólk sem kemur utan EES fengið búsetuleyfi; varanlegt dvalar og atvinnuleyfi. Þeir sem hafa dvalið hér skemur eru um 850 að tölu. Í dómsmálaráðuneytinu hefur fólk áhyggjur af þessum hópi, og ræddi ráðherrann þessi mál við settan forstjóra útlendingastofnunar nýlega.

Haukur Guðmundsson, settur forstjóri útlendingastofnunar segir að fólkið hafi sannarlega greitt til samfélagsins, en það haggi ekki því að dvalarleyfið sé ekki varanlegt. Hins vegar sé það ekki svo að allur hópurinn missi vinnuna; en vafalaust einhver hluti þessara 850, eins og margir aðrir í samfélaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×