Nýdönsk ambassadorar Háskólans á Bifröst 30. maí 2009 09:00 Nýdönsk spilar á vegum Háskólans á Bifröst og Jón Ólafsson hefur heyrt að það hafi hleypt illu blóði í gamla skólaband Bifrastar - Upplyftingu. „
Þetta er hluti af okkar nýstárlegu markaðssetningu – að tengjast tónleikum víðs vegar um landið. Erum að senda skilaboð. Að fara á böll, dansa og hlusta á músík sem er stór þáttur í félagslífi ungs fólks, ekki síst á Bifröst,“ segir Ágúst Einarsson, prófessor og rektor við Háskólann á Bifröst. Í fundargerð skólans frá 21. apríl segir: Nýdönsk verður ambassador skólans. Má þetta heita frumlegur leikur en ekki þekkjast fordæmi þess að skóli komi að rekstri vinsællar hljómsveitar þótt fyrirbærið skólahljómsveit sé þekkt. Upplyfting er til dæmis kennd við Bifröst. Ágúst veit ekki nákvæmlega hvernig samningum við Nýdönsk er háttað og vísaði á markaðsstjóra skólans, Kristínu Ólafsdóttur, hálfsystur hljómborðsleikara Nýdanskra, Jóns Ólafssonar – en ekki náðist í hana í gær. Ágúst segir mikið tónlistarlíf í Bifröst og þetta er liður í að styðja við það. „Tengjum vinsæla hljómsveit skólanum, leggjum góðum málum lið og látum músíkina tala.“ Gamli Verzlóneminn Jón segir Nýdönsk fá sanngjörn vinnulaun fyrir sitt framlag. „Það vakna ýmsar hugmyndir í þessari kreppu. Það er nú ekki þannig að við séum með Bifrastarmerkið á enninu þegar við komum fram en reynum að vera þessum frábæra háskóla til sóma.“ Upplyfting mun vera að vinna að plötu og Jón telur þetta hafa hleypt skapi í það ágæta band. „Þetta hefur haft mikil áhrif á Upplyftingu og ég spyr: Munu þeir spila fyrir Verzló og MH í haust til að hefna sín? Ég hef heyrt að þeir íhugi að skila stúdentshúfum sínum og skólaskírteinum vegna málsins. Kannski við setjum „Traustur vinur“ á prógrammið til að blíðka þá.“- jbg
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira