Lög um íslenskan veruleika 15. maí 2009 03:30 Hljómsveitin Létt á bárunni er skipuð hjónunum Svavari Pétri og Berglindi Häsler. mynd/þorbjörn þorgeirsson
Fyrsta plata hjónadúettsins Létt á bárunni er komin út. Svavar Pétur og Berglind úr Skakkamanage standa að baki sveitinni en auk þess gefur Svavar út fyrsta sólóverkefni sitt, Prins Póló. Útgáfufélögin Brak hljómplötur og Skakkapopp hafa gefið út tvær plötur með hljómsveitunum Prins Póló og Létt á bárunni. Létt á bárunni er hjónadúett Svavars Péturs og Berglindar Häsler úr Skakkamanage og Prins Póló er einmenningssveit Svavars. Plöturnar, sem heita Einn heima og Sexí, hafa að geyma tólf lög samanlagt. Þær urðu báðar til í kjallara í Fossgötu á Seyðisfirði þar sem þau hjónin eiga heima. „Þetta byrjaði einhvern tímann í haust þegar við vorum búin að gefa út Skakkamanage-plötuna. Þá vorum við að hugsa um hvað væri næsta skref,“ segir Svavar. „Það byrjuðu að renna út einhver lög rétt fyrir kreppuna miklu. Lögin fóru að snúast um íslenskan veruleika. Þegar maður er fastur á Seyðisfirði með fjöllin og náttúruna beint í æð liggur það beinast við.“ Kæruleysislegur bragur er yfir báðum plötunum enda voru þær unnar á skömmum tíma. „Það er allt látið flakka frekar en að liggja yfir því. Þetta snýst um að gera hlutina frekar en að átta sig á afleiðingunum,“ segir Svavar. Nálgast má plöturnar á síðunni Skakkapopp.is og í völdum verslunum í Reykjavík og Akureyri. Næstu tónleikar með Létt á bárunni, Prins Póló og Skakkamanage verða á skemmtistaðnum Karamba 6. júní. Eftir þá fer Skakkamanage í tónleikaferð um Þýskaland sem stendur yfir í viku til að kynna plötu sína All Over the Face sem kemur út í Evrópu 1. júní.
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Fleiri fréttir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Sjá meira