Vill frekar sértækar aðgerðir fyrir skuldara en almennar Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 18. ágúst 2009 16:32 Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, varaformaður félags- og trygginganefndar og þingmaður Samfylkingar.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, varaformaður félags- og tryggingamálanefndar, segir ekki von á frumvarpi úr nefndinni vegna skuldavanda heimilanna. Nefndin fundaði um málið í morgun og fékk til sín gestafjöld, þar á meðal fulltrúa Hagsmunasamtaka heimilanna, Íbúðalánasjóðs og stóru bankanna þriggja. Hún segir ýmislegt hafa verið rætt á fundinum, til dæmis starf nefndar á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins um bílalán í erlendri mynt, hvernig hægt sé að koma böndum á háan innheimtukostnað og almennar aðgerðir til niðurfellingar skulda, sem hún er þó ósammála. „Ég held að það sé óhætt að segja að ég hef ekki verið talskona þess að beita almennum aðgerðum því ég tel að við gætum ekki staðið undir því. Auk þess er ekki víst að þær séu neitt réttlátari heldur en þær sértæku," segir Sigríður og bendir á vandann sem skapast við niðurfellingu skulda þegar þeir varkárustu fái í raun minnsta fyrirgreiðslu. Lilja Mósesdóttir, formaður nefndarinnar og þingmaður Vinstri grænna, hefur hins vegar talað fyrir mikilvægi þess að ræða mjög almenna aðgerð, sem gagnast sem flestum skuldurum. Sigríður segir vaxandi vanskil og stækkandi hlutfall tekna sem fer í afborganir áhyggjuefni og segir jafnvel hætt við að þó fólk geti borgað, þá missi það greiðsluviljann. Hún segir mikilvægt að fylgjast með aðstæðum og efla sértæk úrræði á borð við þau sem standa til boða. „Mikilvægast er þó að koma hjólum atvinnulífsins í gang og ná böndum yfir íslensku krónuna. Þar liggja hagsmunirnir og þannig er hægt að hafa áhrif á greiðslugetu heimilanna og greiðslubyrði lánanna," segir Sigríður að lokum.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi Innlent Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Sjá meira