Ný gögn um helförina í skrifum aðstoðarmanns Hitlers Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. október 2009 08:21 Darges og foringinn.
Náinn aðstoðarmaður Adolfs Hitler, sem lést um helgina, gæti varpað nýju ljósi á kenningar endurskoðunarsinna um helför gyðinga. Endurminningar Fritz Darges, sem var 96 ára gamall þegar hann lést um helgina og var síðasti núlifandi aðstoðarmaður Hitlers, gætu þaggað endanlega niður raddir svokallaðra endurskoðunarsinna sem halda því fram að Hitler hafi aldrei vitað neitt um útrýmingarherferðina gegn gyðingum, heldur hafi SS-foringinn Heinrich Himmler alfarið haft veg og vanda af þeim. Darges var aðstoðarmaður í innsta hring hjá Hitler og var viðstaddur alla stóratburði með honum í fjögur ár. Hann ritaði ítarlegar endurminningar um tíma sinn með Hitler og fyrirskipaði að handritið skyldi gefið út að honum látnum. Í endurminningunum kemur skýrt fram að helförin hafi verið fyrirskipuð af Hitler og að langmestu leyti útfærð af honum. Darges fer ekki dult með aðdáun sína á foringjanum og lofar hann í hástert þrátt fyrir að samstarfi þeirra hafi lokið með sviplegum hætti í Rastenburg í júlí 1944, tveimur dögum áður en Claus von Stauffenberg og vitorðsmönnum hans tókst næstum því að ráða Hitler af dögum með sprengjutilræði. Þá undirbjó Hitler ræðu við skrifborð sitt er húsfluga tók að sveima í kringum hann honum til skapraunar. Hann skipaði Darges að losna við þessa óværu en aðstoðarmaðurinn benti á að þar sem plágan væri fljúgandi heyrði það undir Nicolaus von Below, yfirmann flughersins Luftwaffe, að fjarlægja fluguna. Hitler tapaði sér þá af bræði og sendi Darges til austurvígstöðvanna og skildi þar með þeim.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira