Bílavarahlutir hafa hækkað um tæp 40% 5. september 2009 12:07
Kostnaður við rekstur ökutækja hefur hækkað um 14 prósent á síðustu tólf mánuðum samkvæmt rannsókn Rannsóknarseturs verslunarinnar. Bílavarahlutir hafa hækkað um tæp 40 prósent. Rúmlega 6.600 ferðavagnar eru enn óskoðaðir en eigendur þeirra verða rukkaðir um sérstakt vanrækslugjald frá og með 1. október. Það eru ekki einungis bílalánin sem hafa rokið upp í kreppunni heldur einnig kostnaður við rekstur ökutækja. Verð á bílavarahlutum hefur hækkað um rúm 38 prósent og verð á bílaviðgerðum um tæp 5 prósent á síðustu tólf mánuðum samkvæmt rannsókn Rannsóknarseturs verslunarinnar. Kostnaður við rekstur ökutækja hefur hækkað um 14 prósent á tímabilinu. Hækkunin er að mestu rakin til veikingar krónunnar sem hefur skilað sér í hækkun varahluta og eldsneytis. Bifreiðaeigendur þurfa einnig að greiða fyrir skoðun ökutækja en samkvæmt vef umferðarstofu er enn rúmlega 6.600 ferðavagnar, bifhjól og húsbílar óskoðaðir á landinu. Frestur til að fara með ökutæki í skoðun rennur út 1. október en þá geta eigendur átt von á að verða rukkaðir um sérstakt vanrækslugjjald. Fram kemur vef umferðarstofu að 13 prósent allra skráðra bilfhjóla í landinu séu enn óskoðuð en þetta eru um 1.300 bifhjól. Þá á enn eftir að skoða um fimm þúsund ferðavagna og um 253 húsbíla. Með ferðavögnum er átt við tjaldvagna, fellhýsi og hjólhýsi.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Fleiri fréttir Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Sjá meira