Óttast um meintan þolanda hórmangs 16. október 2009 04:00 Þeir sem upplýsingar geta gefið eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 420 1700 eða á næstu lögreglustöð. mynd/Víkurfréttir
Lögregla telur unga litháíska konu, sem grunur leikur á að hafi komið hingað til lands sem fórnarlamb mansals um síðustu helgi, vera í hættu. Lýst hefur verið eftir konunni, sem kom hingað undir nafninu Ieva Grisiúte, og litháískum manni, Vitalijus Gejer að nafni. Þrír litháískir karlmenn eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins þar til í dag. Konan kom hingað til lands með flugvél Iceland Express frá Varsjá í Póllandi síðastliðið föstudagskvöld. Á seinni hluta leiðarinnar virtist konan ærast og barði í kringum sig með ópum og óhljóðum. Áhöfn vélarinnar neyddist til að skerast í leikinn með aðstoð farþega. Á endanum þurfti að binda konuna niður í sætið og kefla hana. Af henni hafði bráð þegar lögregla handtók hana við komuna til landsins og var hún flutt rænulítil á sjúkrahús. Þar dvaldi hún aðfaranótt laugardagsins en síðan hjá lögreglunni á Suðurnesjum að eigin ósk. Hún sagðist ekki eiga í nein hús að venda og engan þekkja hér á landi. Hún gat litlar skýringar gefið á ferð sinni hingað til lands og reyndist vera með stolin ferðaskilríki. Lögreglan varð vör við þrjá menn sem biðu eftir konunni og reyndu að ná sambandi við hana við komuna hingað. Lögregla þekkti til mannanna sem allir eru Litháar og þekktir brotamenn, sumir vegna ofbeldisbrota. Þeir biðu hennar einnig fyrir utan Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þar sem hún fór í skoðun, og lögreglustöðina á Hverfisgötu, þar sem tekin var skýrsla af henni í fyrstu. Einn þeirra var í hópi manna sem réðust á nokkra óeinkennisklædda lögreglumenn í miðbæ Reykjavíkur í fyrra. Fjórir menn voru handteknir vegna rannsóknar málsins og þrír þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þeim fjórða, íslenskum manni, var sleppt. Fjórða Litháans hefur verið leitað undanfarna daga, án árangurs. Hann er 35 ára og talinn tengjast málinu. Hugsanlegt er að hann hafi farið úr landi áður en konan kom hingað á laugardag. Spurður hvort konan hefði átt að vera undir lögregluvernd segir Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, að litið sé á þann sem verður fyrir mansali sem fórnarlamb og þolanda. „Það er reynt að umgangast fólk í þessari stöðu með það í huga. Reynt er að vista það á góðum stað, þar sem það telur sig vera þokkalega öruggt og líður vel.“ Konan var vistuð í húsnæði á vegum félagsmálayfirvalda sem engum átti að vera kunnugt um. Hún hvarf þaðan á mánudagskvöld, að því er virðist sjálfviljug. Hún hafði verið látin hafa farsíma til að kalla eftir aðstoð. Reynt hefur verið að staðsetja farsímann, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur það ekki verið hægt þar sem slökkt er á honum. Leit að konunni stóð enn yfir þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi.
Mest lesið Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Veður „Auddi, Steindi og Egill voru í markaðsmálum“ Innlent Vorhret í Vaglaskógi: Gasgrillið í fullum gangi svo að fortjaldið sligist ekki undan snjónum Innlent „Ekki hægt að segja annað en fyrirgefið“ Innlent Fundaði með borginni: „Hef upplifað ýmislegt en aldrei svona grimmd“ Innlent Vilja að Aþena fylgi mannréttindastefnu borgarinnar Innlent Turnarnir svínvirka en fegrunaraðgerðir í farvatninu Innlent Varð undir bílhræi ofan í járntætara og fær 150 milljónir Innlent Brúnni milli Rússlands og Krímskaga lokað eftir sprengingar Erlent Sakar Víði um pólitísk afskipti af máli Oscars Innlent Fleiri fréttir Þungir dómar fyrir að smygla fleiri lítrum af kókaíni „Ættum frekar að láta borgina skrifa undir mannréttindasáttmála“ „Þarna er gripið fram fyrir hendurnar á Alþingi“ Gæsluvarðhald framlengt aftur Alveg gáttuð á framgöngu Víðis sem hafi brotið trúnað Landris mælist áfram í Svartsengi Vilja að Aþena fylgi mannréttindastefnu borgarinnar Hefur metnað til að leiða flokkinn þrátt fyrir slæmt gengi „Ekki hægt að segja annað en fyrirgefið“ Reyna að bjarga 100 kindum og lömbum á kafi í snjó Víðir um mál Oscars: „Réttur okkar þingmanna að hafa skoðun“ Notkun rafbyssa í samræmi við markmið Varð undir bílhræi ofan í járntætara og fær 150 milljónir „Auddi, Steindi og Egill voru í markaðsmálum“ Sakar Víði um pólitísk afskipti af máli Oscars Þurfa að gefa út ákæru á morgun ef gæsluvarðhaldið á að vera lengra Vorhret í Vaglaskógi: Gasgrillið í fullum gangi svo að fortjaldið sligist ekki undan snjónum Rafbyssu beitt þrisvar sinnum á fyrsta ársfjórðungi Nóttin róleg hjá björgunarsveitum Turnarnir svínvirka en fegrunaraðgerðir í farvatninu „Norðan óveður á landinu í dag“ Fundaði með borginni: „Hef upplifað ýmislegt en aldrei svona grimmd“ „Beðið um leyfi fyrir átta þúsund manns“ Bendir ríkisstjórn á „byrjendanámskeið í verkefnastjórnun“ Fundað vegna örtraðarinnar í höllinni Minnsta fylgi Framsóknar í 33 ára sögu þjóðarpúlsins Kalla út snjóruðningstæki og bændur koma búfé í skjól Vilja ný og öruggari bílastæði á samningslausu landi gróðrarstöðvar Óveður, yfirlið á tónleikum og málahali Ákváðu að stöðva ekki tónleikana: „Þá fyrst hefði skrattinn hitt ömmu sína“ Sjá meira
Vorhret í Vaglaskógi: Gasgrillið í fullum gangi svo að fortjaldið sligist ekki undan snjónum Innlent
Vorhret í Vaglaskógi: Gasgrillið í fullum gangi svo að fortjaldið sligist ekki undan snjónum Innlent