Kærasti Jóhönnu hélt ró sinni í Moskvu 14. maí 2009 06:00 Guðrún og kærastinn, Ólafur Ólafsson, ætluðu að fara út að borða í kvöld í tilefni af góðum árangri, blómvöndurinn kemur þegar sigur er í höfn. „
Ég var alveg pollrólegur yfir þessu, þetta var auðvitað hörkuspennandi en ég var alveg handviss um að við værum í síðasta umslaginu," segir Ólafur Ólafsson, kærasti Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur. Hann er kominn til Moskvu til að styðja við bakið á unnustunni í Eurovision-orrustunni ásamt föður sínum, athafnamanninum Ólafi Björnssyni. Ólafur bætir því við að spennan hafi tekið mest á móður Jóhönnu sem hafi setið við hlið hans en sjálfur hafi hann haldið ró sinni. „Ég var bara alveg hæfilega spenntur." Aðspurður hvernig föður hans hafi litist á keppnina segir Ólafur að hann hafi, líkt og aðrir Íslendingar, verið nokkuð spenntur. Honum hafi hins vegar verið meinilla við belgíska lagið CopyCat. Í gær var svo komið að frídegi hjá Eurovision-hópnum og þá var kærkomið tækifæri fyrir parið unga að eyða smá tíma saman. Enda hefur Eurovision-þátttakan átt allan hug Jóhönnu undanfarnar vikur og mánuði. Ólafur kvaðst þó ekki vera búinn að kaupa blóm handa spúsu sinni því hann ætlaði að geyma bestu rósirnar þangað til á laugardaginn. „Þegar hún vinnur þessa keppni," segir Ólafur, alveg sannfærður um íslenskan sigur í Moskvu. Ekki að ósekju. Eins og heyra mátti í útsendingunni í gær var alveg gríðarlegur stuðningur við íslenska lagið og blaðamenn í Moskvu eru ákaflega bjartsýnir fyrir Íslands hönd. „Þetta var bara hálfur sigur, nú förum við bara alla leið." Þau Ólafur og Jóhanna ætluðu þó að leyfa sér þann munað að fara út að borða saman og fagna þessum áfanga en svo taka við þrotlausar æfingar og undirbúningur fyrir úrslitakvöldið sjálft en Jóhanna verður sjöunda á sviðið á laugardaginn.
Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira