Tekist á um bæjarstjórastólinn í Kópavogi 12. júní 2009 18:19
Valdabarátta hefur blossað upp milli tveggja bæjarfulltrúa sjálfstæðismanna í Kópavogi um hver taki við bæjarstjórastarfinu af Gunnari Birgissyni, sem boðist hefur til að víkja til að meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks haldi. Hart hefur verið sótt að Gunnari eftir að skýrsla endurskoðendafyrirtækisins Deloitte, um viðskipti Kópavogsbæjar og fyrirtæksins Frjálsrar miðlunar sem er í eigu dóttur Gunnars og eiginmanns hennar, var birt í byrjun vikunnar. Fulltrúaráðs Framsóknarflokksins fundaði um málið í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu kynnti Ómar Stefánsson oddviti framsóknarmanna þar niðurstöðu sem hann og Gunnar höfðu náð saman um og fól í sér að Gunnar myndi víkja úr bæjarstjórastólnum og annar úr röðum sjálfstæðismanna taka við. Bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins funduðu í dag um málið og hafa samkvæmt heimildum fréttastofu ekki getað komið sér saman um hver taki við af Gunnari. Tveir úr hópnum vilja bæjarstjórastólinn þeir Gunnsteinn Sigurðsson og Ármann Kr. Ólafsson. Gunnsteinn skipaði annað sæti á lista flokksins í síðustu sveitarstjórnarkosningum en Ármann þriðja sætið og á hvorugur auðvelt með að una því að hinn fái stólinn. Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi kemur saman til fundar á mánudaginn vegna málsins og er ekki búist við að niðurstaðan verði ljós fyrr en eftir þann fund.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Innlent Fleiri fréttir Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Sjá meira