Meintur hnífakastmaður neitar að hafa beitt börn sín ofbeldi 13. febrúar 2009 18:29
Maður sem ákærður hefur verið fyrir að beita börnin sín þrjú ofbeldi neitaði sök við þingfestingu málsins. Hann er meðal annars ákærður fyrir að hafa kastað hnífum að elsta barni sínu. Málið kom upp í byrjun síðasta árs en þá hófu barnaverndaryfirvöld að rannsaka meint ofbeldi í garð þriggja barna sem bjuggu ásamt föður sínum. Hann hafði nokkrum árum áður unnið áralanga forræðisdeilu við móðir barnanna en hún átti við vímuefnavanda að stríða. Vísbendingar voru um að börnin hefðu um langa hríð verið beitt alvarlegu ofbeldi. Grunur beindist fljótlega að föður barnanna en hann neitaði staðfastlega sök. Faðirinn er ekki bara grunaður um að beitt börnin ofbeldi heldur er hann einnig grunaður um að hafa notað elsta barnið sitt sem skotskífu og kastað hnífum að því. Börnin hafa búið hjá ömmu sinni og afa undanfarið og farnast ágætlega samkvæmt heimildum fréttastofu. Þau sækja til að mynda regluleg viðtöl á Barna og unglingageðdeild. Ríkissaksóknari fékk málið á sitt borð í lok síðasta árs og gaf svo út ákæru á hendur föðurnum í byrjun þessa árs. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur nú í lok janúar. Við þingfestinguna neitaði faðirinn öllum sakargiftum. Réttarhaldið er lokað og ekki hægt að fá afrit af ákæruskjali en heimildir fréttastofu herma hins vegar að í ákærunni sé föðurnum gefið að sök líkamsárásir gegn öllum þremur börnunum og að hafa brotið gegn barnaverndarlögum. Þá hefur réttargæslumaður barnanna lagt fram bótakröfu fyrir þeirra hönd sem hleypur á nokkrum milljónum króna. Málflutningur fer fram í lok þessa mánaðar.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira