Innlent

Leit að Aldísi lokið í dag

Víðtæk leit lögreglunnar og björgunarsveita, sem staðið hefur yfir að Aldísi Westergren í dag lauk án árangurs, þegar myrkra tók undir kvöld. Aldís hvarf frá heimili sínu við Gvendargeisla í Grafarholti 24. febrúar síðastliðinn. Fljótlega var farið að grennslast fyrir um hana og svo hófst leit um síðustu helgi, en ekki var leitað framan af vikunni. Lögregla beinir því til huseigenda og húsbyggjenda á svæðinu og í grennd að svipast um í vinnuskúrum og nýbyggingum. Ekki liggur fyrir hvort leitað verður á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×