Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir grófa handrukkun 29. janúar 2009 18:09
Hæstiréttur dæmdi í dag þá Arnar Óla Bjarnason í tveggja og hálfs árs fangelsi og Róbert Wayne Love í tveggja ára fangelsi fyrir húsbrot rán og frelsissviptingu fyrir að hafa í heimildarleysi ruðst inn á heimili pilts, svipt hann frelsi sínu og beitt hann ofbeldi og hótunum um ofbeldi í því skyni að ná frá honum verðmætum. Málsatvik eru þau að Ólöf Ósk Erlendsdóttir sem komst í fréttirnar fyrir að kæra Guðmund Jónsson í Byrginu á sínum tíma, fékk piltinn með blekkingum til þess að hleypa sér inn á heimili hans á meðan Arnar Óli og Róbert biðu fyrir utan húsið. Skömmu síðar hleypti hún strákunum inn um inngang frammi á gangi en þeir ruddust síðan í sameiningu inn á heimili piltsins. Þvinguðu þeir piltinn með skipunum til þess að setjast á stól og Ólöf batt piltinn fastan við stólinn með reipum og límbandi, keflaði hann með munnkúlu áfastri ól sem hún festi á hann og setti leðurgrímu yfir höfuð hans. Því næst veittust strákarnir að piltinum á meðan hann var keflaður og bundinn, þeir kýldu hann síðan í andlit og spörkuðu í hann. Arnar Óli hellti þvi næst eldfimum vökva yfir piltinn og hótaði honum frekari barsmíðum og að ætla að mölva í honum tennurnar og bora í hnéskeljarnar á honum. Hann spurði piltinn síðan hvort hann vildi deyja með því að segjast ætla að stinga hann með sprautu og dæla úr henni svo hann hlyti bana af en einnig ógnaði hann honum með butterfly hnífi. Róbert Wayne lamdi piltinn með járnstöng í vinstra hnéð og þvingaði hann til þess að vísa á verðmæti í íbúðinni og kveikjulásalykla af bifreið, auk þess sem hann reyndi að fá hann til þess að gefa út afsal fyrir bifreiðinni. Fleira fólk var á svæðinu sem hjálpuðust við að koma þýfi sem var í íbúðinni í umrædda bifreið en Róbert Wayne keyrði henni síðan upp í Breiðholt þar sem bifreiðin var affremd og þýfinu komið fyrir í húsnæði. Héraðsdómur hafði áður dæmt Ólöfu til refsingar en hún játaði aðild sína að brotinu fyrir dómi. Hún sagðist hafa neytt fíkniefna með hléum frá því að hún var í grunnskóla. Hún hafi verið í mikilli neyslu á þeim tíma sem ráðist var á manninn en fyrir dómi sagðist hún hafa verið edrú í um það bil tvo og hálfan mánuð. Hún sagðist vinna sjálfboðaliðsstarf í kirkjunni til að öðlast aftur traust almennings. Héraðsdómur hafði áður dæmt Róbert Wayne í tveggja ára fangelsi en Hæstiréttur staðfesti þann dóm. Arnar Óli hafði hinsvegar verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi en sá dómur var þyngdur í tveggja og hálfs árs fangelsi eins og fyrr segir. Gæsluvarðhald sem þeir sátu í frá 2.febrúar til 7.febrúar árið 2007 kemur til frádráttar fangelsisvistar.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira