Innlent

Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir grófa handrukkun

Hæstiréttur dæmdi í dag þá Arnar Óla Bjarnason í tveggja og hálfs árs fangelsi og Róbert Wayne Love í tveggja ára fangelsi fyrir húsbrot rán og frelsissviptingu fyrir að hafa í heimildarleysi ruðst inn á heimili pilts, svipt hann frelsi sínu og beitt hann ofbeldi og hótunum um ofbeldi í því skyni að ná frá honum verðmætum.

Málsatvik eru þau að Ólöf Ósk Erlendsdóttir sem komst í fréttirnar fyrir að kæra Guðmund Jónsson í Byrginu á sínum tíma, fékk piltinn með blekkingum til þess að hleypa sér inn á heimili hans á meðan Arnar Óli og Róbert biðu fyrir utan húsið. Skömmu síðar hleypti hún strákunum inn um inngang frammi á gangi en þeir ruddust síðan í sameiningu inn á heimili piltsins.

Þvinguðu þeir piltinn með skipunum til þess að setjast á stól og Ólöf batt piltinn fastan við stólinn með reipum og límbandi, keflaði hann með munnkúlu áfastri ól sem hún festi á hann og setti leðurgrímu yfir höfuð hans.

Því næst veittust strákarnir að piltinum á meðan hann var keflaður og bundinn, þeir kýldu hann síðan í andlit og spörkuðu í hann. Arnar Óli hellti þvi næst eldfimum vökva yfir piltinn og hótaði honum frekari barsmíðum og að ætla að mölva í honum tennurnar og bora í hnéskeljarnar á honum. Hann spurði piltinn síðan hvort hann vildi deyja með því að segjast ætla að stinga hann með sprautu og dæla úr henni svo hann hlyti bana af en einnig ógnaði hann honum með butterfly hnífi.

Róbert Wayne lamdi piltinn með járnstöng í vinstra hnéð og þvingaði hann til þess að vísa á verðmæti í íbúðinni og kveikjulásalykla af bifreið, auk þess sem hann reyndi að fá hann til þess að gefa út afsal fyrir bifreiðinni.

Fleira fólk var á svæðinu sem hjálpuðust við að koma þýfi sem var í íbúðinni í umrædda bifreið en Róbert Wayne keyrði henni síðan upp í Breiðholt þar sem bifreiðin var affremd og þýfinu komið fyrir í húsnæði.

Héraðsdómur hafði áður dæmt Ólöfu til refsingar en hún játaði aðild sína að brotinu fyrir dómi. Hún sagðist hafa neytt fíkniefna með hléum frá því að hún var í grunnskóla. Hún hafi verið í mikilli neyslu á þeim tíma sem ráðist var á manninn en fyrir dómi sagðist hún hafa verið edrú í um það bil tvo og hálfan mánuð. Hún sagðist vinna sjálfboðaliðsstarf í kirkjunni til að öðlast aftur traust almennings.

Héraðsdómur hafði áður dæmt Róbert Wayne í tveggja ára fangelsi en Hæstiréttur staðfesti þann dóm. Arnar Óli hafði hinsvegar verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi en sá dómur var þyngdur í tveggja og hálfs árs fangelsi eins og fyrr segir. Gæsluvarðhald sem þeir sátu í frá 2.febrúar til 7.febrúar árið 2007 kemur til frádráttar fangelsisvistar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×