Íslendingar leiða alþjóðlega rannsókn á sviði gervigreindar 11. febrúar 2009 17:24 Dr. Kristinn R. Þórisson, dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík hefur verið úthlutað tveggja milljóna Evra styrk úr sjöundu rammaáætlun Evrópusambandsins að andvirði um 300 milljónir íslenskra króna til gervigreindarrannsókna. Fram kemur í tilkynningu að styrkurinn er sá langhæsti sem veittur hefur verið íslenskum aðilum til rannsókna í tölvunarfræðum og jafnframt hæsti rannsóknarstyrkur sem veittur hefur verið vísindamönnum við HR. „Skólinn kemur til með að leiða þriggja ára rannsóknarverkefni á gervigreind, í samstarfi við breskt fyrirtæki og fjóra evrópska háskóla. Styrkurinn er veittur til rannsókna á grunntækni gervigreindar og er takmark þeirra að þróa nýjar aðferðir við gerð gervigreindra vitvera sem geta numið flókið atferli og lært án beinnar íhlutunar forritara," segir í tilkynningu. Dr. Kristinn R. Þórisson, dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, er hugmyndasmiður og upphafsmaður þessarar rannsóknar og kemur til með að leiða rannsóknarstarf háskólanna fimm. Kristinn segir að í verkefninu verði smíðuð ný tegund hugbúnaðar, gædd sjón og heyrn, sem getur fylgst með hegðun fólks með því að hlusta og horfa. „Forritið mun stýra „sýndarvélmenni" sem smám saman lærir upp á eigin spýtur að herma eftir mannlegri hegðun og þroskast í bæði hegðun og hugsun. Vonast rannsóknarhópurinn til að verkefnið leiði til verulegra framfara á því sviði sem nefnt hefur verið „almenn gerivigreind" (e. artificial general intelligence)."
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira