Rúmlega 40 þúsund steratöflur teknar 5. september 2009 08:15 Sterarnir sem reynt hefur verið að smygla hingað til lands hafa ýmist verið í föstu eða fljótandi formi. Fljótandi sterar eru í svokölluðum hettuglösum sem taka yfir einn millilítra.
Starfsmenn tollstjóra hafa gert upptækar rúmlega 40 þúsund steratöflur og um það bil fjóra lítra af fljótandi sterum í póstsendingum hingað til lands það sem af er árinu. Þetta er um það bil fjórfalt magn af sterum miðað við það sem stöðvað var í póstinum allt árið í fyrra. Þá hefur tollurinn stöðvað fjórfalt meira magn af fíkniefnum í sendingum til landsins það sem af er þessu ári miðað allt síðasta ár. Þetta staðfestir Gunnar Sæmundsson, aðalvarðstjóri hjá embætti Tollstjóra. Hann segir sterasendingarnar einkum hafa komið frá Taílandi og Póllandi. Fíkniefnin sem stöðvuð hafi verið í póstinum hafi til að mynda verið send frá Póllandi, Hollandi og Danmörku. Þar hafi mest borið á amfetamíni en einnig hafi verið talsvert um e-töflur. Þá hafi meira verið tekið af marijúana eftir að lögregla upprætti stórvirkar ræktunarverksmiðjur hér. Lítið hafi hins vegar borið á kókaíni. Spurður um magn efnanna sem tekin hafa verið á þessu ári kveðst Gunnar ekki vilja tjá sig um það, þar sem rannsóknir slíkra mála sé í höndum lögreglu. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær virðist sem innbrotsþjófar, sem hafa gerst athafnasamari og bíræfnari á síðustu mánuðum, sækist mikið eftir verðmætum skarpgripum. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins leikur rökstuddur grunur á að þeir hyggist koma þýfi af því tagi úr landi til að fjármagna kaup á fíkniefnum. Þyki skartgripir hentug verslunarvara í því skyni, þar sem bæði fari lítið fyrir þeim í flutningum auk þess sem hægt er að bræða gullið áður en því er komið út fyrir landsteinana, sem útiloki að hægt sé að sanna sök. Um þetta kveðst Gunnar ekki geta tjáð sig þar sem það myndi einnig vera um að ræða lögreglumál ef upp kæmi. Spurður hvort tollurinn hafi orðið var við að skartgripir séu sendir úr landi, burtséð frá því hvort menn telji það vera þýfi eður ei, segir hann svo vera. Farið hafi að bera á slíkum sendingum í fyrrasumar og þeim hafi farið fjölgandi. Einnig hafi orðið vart við sendingar til útlanda sem hafi innihaldið gull sem hafi verið búið að bræða. jss@frettabladid.is
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Fleiri fréttir Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Sjá meira