Boða kvöldfundi en mæta ekki sjálfir 27. nóvember 2009 04:45 Alþingi. Ríkisábyrgð á Icesave-skuldbindingunum hefur verið rædd fram undir miðnætti fyrir hálftómum sal á nokkrum fundum Alþingis að undanförnu. Slíkur kvöldfundur var í gærkvöldi við litlar vinsældir stjórnarandstöðunnar.fréttablaðið/Pjetur
Tuttugu og fjórir þingmenn létu að sér kveða í heitum umræðum við upphaf þingfundar þar sem stjórnarandstaðan mótmælti því að halda ætti kvöldfund í þinginu til að ræða stjórnarfrumvarp um ríkisábyrgð. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir ríkisstjórnina vilja helst að umræður um Icesave „fari fram hér á kvöldin eða næturnar svoleiðis að stjórnarliðar þurfi ekki að hlusta á þær". Unnur Brá Konráðsdóttir, Sjálfstæðisflokki, og fleiri átöldu stjórnarþingmenn fyrir að mæta ekki og hlusta á umræður á kvöldfundum, sem þeir styðja sjálfir að boðað sé til. „Ef þetta eru vinnubrögðin, að fara með málin hér í gegn á kvöldin og um nætur, munum við að sjálfsögðu taka á því með þeim hætti sem þarf," sagði Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknar. „Um þetta verður ekki friður. Það er ríkisstjórnin, sem er að gefa upp þennan bolta og við munum grípa á lofti og senda til baka." Stjórnarþingmenn sögðu stjórnarandstöðuna efna til málþófs um Icesave til að tefja þingstörf og hindra að önnur mál og brýnni kæmust á dagskrá, til dæmis skattamál og afgreiðsla fjárlaga. Illugi Gunnarsson sagði að þvert á móti vildi þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hliðra til fyrir brýnum málum, sem „snúa að fyrirtækjunum og heimilunum". Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og fleiri lánveitendur íslenska ríkisins hafi sagt að afgreiðsla Icesave sé ekki skilyrði fyrir lánveitingum og samstarfi við Ísland. Þá sé ekkert því til fyrirstöðu að Alþingi taki Icesave af dagskrá og snúi sér að brýnni málum, eins og ríkisfjármálum og skattafrumvörpum stjórnarinnar. Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði mótsögn í málflutningi stjórnarandstæðinga. Annars vegar ættu stjórnarliðar að sitja næturfundi, af því að málið væri svo brýnt. „Í hinu orðinu tala þeir um að það sé annað brýnna að ræða og þessu megi fresta fram í febrúar." Eftir sex mánaða umræður sagðist Ólína ekki sjá ástæðu „til að halda vöku minni" en sjálfsagt sé að gefa svigrúm þeim sem vilja enn þá ræða um Icesave fram á nætur. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Fleiri fréttir Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Sjá meira