Innlent

Andvíg lokun útibús á Hofsósi

Hofsós
Loka á eina bankaútibúinu í þorpinu.
Hofsós Loka á eina bankaútibúinu í þorpinu.

Byggðarráð Skagafjarðar mótmælir áformum Kaupþings um að loka útibúi bankans á Hofsósi.

„Lýsir ráðið undrun á að gripið sé til þessara aðgerða hjá ríkisbanka stuttu áður en nýir eigendur taki við rekstri hans. Þjónusta bankans hefur haft mikla þýðingu fyrir íbúa svæðisins og bent er á að langt er í næstu bankastofnanir. Byggðarráð skorar á stjórn bankans að endurskoða þessi áform þar sem þau munu án efa leiða til fækkunar viðskiptavina og ólíklegt að þau skili bankanum þeim fjárhagslega ávinningi sem stefnt er að,“ segir ráðið.- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×