Íslendingar trúðu á endalausa uppsveiflu - en þeir trúa líka á álfa Valur Grettisson skrifar 2. september 2009 12:35
Ef Íslendingar eru nógu ruglaðir til þess að koma sér í efnahagslegar hamfarir, þá gætu þeir verið nógu klikkaðir til þess að vinna sig aftur úr þeim. Svona kynnir fréttakonan Liz Hayes Ísland til sögunnar í áströlsku útgáfunni af 60 mínútum. Þátturinn, sem er um 13 mínútur að lengd, fjallar um stöðuna á Íslandi eftir bankahrunið. Þar er meðal annars rætt við sjónvarpskonuna Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur sem og Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra. Þá er einnig rætt við konu sem sér álfa og sjómann sem varð gjaldeyrismiðlari og svo aftur sjómaður.Þjóðaríþrótt Íslands Þar segir Liz að Ísland sé lítil skrýtin eyja sem ætlaði sér of mikla hluti. Hinu risastóra bankakerfi var haldið uppi af þrjúhundruð þúsund manna þjóð. Til þess að Ástralir skilji samanburðinn líkir Liz Íslandi við smábæinn Wollagong í Ástralíu. „Hvað voru þeir að hugsa?" spyr Liz steinhissa á framferði Íslendinga. Þegar hún ræðir við Steingrím J. Sigfússon líkir hann bankahruninu við náttúruhamfarir. Hann segir að kreppan sem skall á með svo miklum ofsa hér á Íslandi jafngildi eldgosi eða jarðskjálfta. Munurinn sé hinsvegar sá að þessar náttúruhamfarir voru af mannavöldum. Síðan hneykslast Steingrímur á Ólafi Ólafssyni þegar hann hélt upp á afmælið sitt hér um árið. Steingrímur útskýrir fyrir Liz að Ólafur hafi fengið Elton John til þess að syngja fyrir sig, - og það illa að auki.Endalaust af vinnu Ragnhildur Steinunn er svo kynnt til sögunnar sem fegurðardrottning og leikkona. Því næst er sérkennilegt myndskeið af henni sýnt þar sem hún er að leika í Astrópíu. Ragnhildur útskýrir fyrir Liz að ástandið á Íslandi hafi verið sérkennilegt fyrir hrun. Hún nefnir sem dæmi að næga vinnu hafi verið að hafa og fólk hafi ítrekað skipt um þær. Því næst sýnir Liz tóma háhýsið í Borgartúninu undir dramatísku stefi. Ragnhildur segir henni að það hafi verið eins og svart ský á himni þegar hrunið varð að veruleika. Fólk hafi óttast um peningana sína.Trúðum á endalausan uppgang og álfa Og Liz segir að Íslendingar hafi verið svo barnalegir að halda að þessi uppgangur myndi halda endalaust áfram. „En á móti kemur, þeir trúa líka á álfa," segir Liz og ræðir við Þórunni Kristínu Emilsdóttur. Þórunn sýnir fréttakonunni álfa á Hamri í Hafnarfirði. Sjónvarpsfréttakonan viðurkennir svo fyrir sjáandanum að hún sjái alls ekkert. Þá sýnir sjándinn henni brúðu af því sem líkist álfi.Eigum heima í sjómennsku Að lokum segir Liz að Íslendingar hafi leitað aftur til upprunans, sjómennskunnar - „þar sem þeir áttu að halda sig frá upphafi," segir hún að endingu. Myndbandið má sjá hér.
Mest lesið Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Innlent „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Innlent Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Innlent Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Innlent Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Innlent Afar mjótt á munum hjá forsetaframbjóðendum í Póllandi Erlent Segja ógnarstjórn ríkja á Þjóðminjasafninu Innlent Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi Innlent Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Innlent Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Innlent Fleiri fréttir „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Ók hlaupahjólinu á tré með pizzu í annarri Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Umferðartafir vegna framkvæmda við Kringlumýrarbraut í sumar Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Sóttu veikan mann í rússneskan togara Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Rannsókn lokið í manndrápsmáli Lögðu hald á nokkuð magn fíkniefna og hnífa Sláandi tölur: Kyrkingartökum og eltihrellum fer fjölgandi Mætti með steikarhníf á leikskóla Kyrkingartök og elltihrellahegðun fara vaxandi og myndband af áreitni í miðborginni Grill í ljósum logum úti á svölum Vilja endurbyggja verkstæðið en nágrannar mótmæla harðlega Margra kílómetra bílaröð eftir árekstur á Vesturlandsvegi Halda framkvæmdastjóra Félagsbústaða þrátt fyrir alvarlegt vantraust Telja að maðurinn sé fundinn „Þetta er mjög þungt og erfitt“ „Ég vara mjög við því að menn beiti þessu úrræði“ „Verið að búa til óseðjandi kerfi þar sem bátum mun fjölga“ Eldur kviknaði í vörubíl á Reykjanesbraut Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi „Yndisleg kvöldstund í þessum þunga harmi okkar“ Leit hefst á ný eftir hádegi Klúðursleg rannsókn lögreglu leiddi til sýknu skipstjóra Reknir fyrir að vinna ekki nógu mikið Sjá meira