Bruðl í Alþjóðahúsinu 4. desember 2009 18:32
Alþjóðahús stendur ekki undir nafni og starfsemin þar er ekki svipur hjá sjón. Þetta er skoðun bæði núverandi og fyrrverandi starfsmanna sem gagnrýna að eigendum hafi verið greiddur arður og að stjórnarformaður þiggi milljónir króna í laun fyrir lögfræðistörf þrátt fyrir að vera í fullri vinnu annars staðar. Þessi harða gagnrýni kemur fram í bréfi sem hópur núverandi og fyrrverandi starfsmanna hússins sendi borgarstjóra í síðasta mánuði. Í bréfinu segir að eftir að sjálfseignarstofnunin Kosmos tók við rekstri Alþjóðahúss hafi farið að halla undan fæti. Stjórnendur Kosmos, þau Katla Þorsteinsdóttir og Hákon Gunnarsson, hafi haft annað markmið í huga með starfseminni en þjónustu við innflytjendur. Til að mynda hafi starfsfólki verið sagt að veita ekki fræðslu og fleira nema endurgjald kæmi fyrir. Þá var einnig óskað eftir skýringum á arðgreiðslum af starfsemi Alþjóðahúss til Kosmos upp á fjórar milljónir árið 2008. Meira en tvær milljónir af þessari arðgreiðslu hafa þegar verið greiddar og rann helmingur hennar beint í vasa stjórnarmanna Kosmos. Starfsmenn eru einnig ósáttir að þrátt fyrir að stjórnin hafi komið í veg fyrir að lögfræðingur yrði ráðin til starfa eins og nauðsyn var á hafi Katla stjórnarformaður þegið laun fyrir 50% vinnu í Alþjóðahúsi þrátt fyrir að hún sé í 100% starfi annars staðar, en hún er framkvæmdastjóri hjá Rauða Krossinum. Samkvæmd heimildum fréttastofu hefur Katla þegið rúmar tvær milljónir í laun frá Alþjóðahúsi það sem af er þessu ári samhliða fullu starfi sínu sem framkvæmdastjóri hjá Rauða krossinum. Katla sagði í samtali við fréttastofu í dag að vinna sín fyrir Alþjóðahús væri að mestu unnin um kvöld og helgar og að hún væri með þessu að spara húsinu kostnað. Varðandi arðgreiðslurnar segir hún að þær hafi að mestu farið í að greiða stjórnarlaun sem séu sanngjörn miðað við sambærilegar stofnannir. Framtíð Alþjóðahúss ræðst á næstum dögum en nefnd á vegum Reykjavíkurborgar hefur lagt til að þjónustusamningur við húsið verði ekki endurnýjaður.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Fleiri fréttir Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri Sjá meira