Óskað eftir stuðningi Seðlabanka Evrópu 17. júlí 2009 03:30
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir líklegt að gengið verði til viðræðna við Seðlabanka Evrópu í haust um stuðning í gjaldeyrismálum. Þær viðræður þurfi ekki að tengjast umsóknar-ferlinu að Evrópusambandinu beint, en geti farið fram samhliða þeim. Gylfi segir vel þess virði að sækjast nokkuð fast eftir stuðningnum. Alþingi samþykkti í gær að óska eftir að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Óskað verður eftir viðræðum á utanríkisráðherrafundi Evrópusambandsins 27. júlí. Evrópusambandið tekur síðan afstöðu til þess í desember hvort viðræður hefjist, en það verður ekki fyrr en í fyrsta lagi í febrúar. Össur Skarphéðinsson utanríkis-ráðherra sagði niðurstöðuna vera sögulega, en hún hefði ekki komið á óvart. „Ég var nokkuð viss um niðurstöðuna þegar ég gekk til atkvæðagreiðslunnar og hún var fráleitt jafn tvísýn og sumir langlífir fjölmiðlar hafa haldið fram af óskhyggju einni saman." Össur segir niðurstöðuna á þingi munu styrkja íslensku samninganefndina í viðræðum sínum. Atkvæðagreiðslan sýni að málið renni ekki eins og mjöður niður kverkar þjóðarinnar og Evrópusambandið verði að taka nærfærið tillit til þeirrar stöðu sem er á Íslandi. Ekki er enn ljóst hvernig samninganefndin verður skipuð, en í þingsályktunartillögunni er skýrt kveðið á um ríkt samráð við hagsmunaaðila. Össur segir mikilvægt að sem breiðust fylking sé að baki viðræðunefndinni. „Því öflugra sem baklandið er, því meiri líkur eru á að heildarhagsmunir Íslands nái fram að ganga." Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að í stjórnarmyndunarviðræðum í vor hafi Össur boðið vinstri grænum að leiða Evrópuviðræðurnar. Það mál sé þó enn óafgreitt. Össur staðfesti það ekki. 33 þingmenn samþykktu tillöguna í gær, 28 greiddu atkvæði gegn henni, þar af fimm þingmenn vinstri grænna og tveir sátu hjá; þær Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Allir flokkar klofnuðu í afstöðu sinni fyrir utan Samfylkingu, en allir þingmenn hennar samþykktu tillöguna.- kóp, bþa
Mest lesið Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Björgvin Halldórsson látinn Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Fleiri fréttir Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Sjá meira