Ekki virkjað nema annað bregðist 17. júlí 2009 03:00 þeistareykir Ekki á að virkja í Gjástykki nema annað bregðist. Ef borholur verða ekki nýttar sem vinnsluholur verður gengið frá eins og að var komið. fréttablaðið/völundur
Landsvirkjun hyggst bora þrjár rannsóknarborholur við Gjástykki í Þingeyjarsveit. Umhverfis-áhrif vegna framkvæmdanna eru talin óveruleg, samkvæmt frummatsskýrslu Mannvits verkfræðistofu. Umhverfisáhrif sem talin eru upp í skýrslunni eru helst þau að áhrif á nútímahraun, sem verndað er samkvæmt lögum, verða nokkuð neikvæð. Hins vegar er talið að skaðinn sé afturkræfur. Einnig er talið að sjónræn áhrif gufustróks vegna borananna verði nokkuð neikvæð. Áhrif á gróður og lífríki eru talin óveruleg. Borunin er liður í samstarfi Landsvirkjunar og Þeistareykja ehf. um rannsóknir og könnun á virkjunarmöguleikum háhitasvæða á Norðausturlandi. Ekki verður virkjað í Gjástykki nema hin svæðin, Krafla, Þeistareykir og Bjarnarflag, gefi ekki nægjanlega orku fyrir starfsemi og atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Ef rannsóknarboranir leiða í ljós að borholur verði ekki nýttar sem vinnsluholur verður gengið frá svæðinu. Við frágang yrðu ummerki fjarlægð og svæðið fært í fyrra horf eins og mögulegt er, samkvæmt skýrslunni. Skýrslan liggur nú til kynningar á skrifstofu Þingeyjarsveitar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér hana og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 28. ágúst til Skipulagsstofnunar.- vsp
Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Innlent Fleiri fréttir Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Sjá meira