Erlent

Atvinnuleysi stóreykur líkur á skilnaði

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Þrátt fyrir að markaðir heimsins séu sumir hverjir að ná sér á strik hægt og bítandi eftir fjármálahrunið er líklegt að botninum sé enn ekki náð þegar litið er til áhrifa hrunsins á fjölskyldulíf fólks. Þetta kemur fram í máli framkvæmdastjóra góðgerðarsamtakanna Anglicare Australia sem segir að áhrif kreppunnar á sambönd hjóna og sambúðarfólks geti verið skelfileg. Búast megi við fjölda skilnaða og sambandsslita í kjölfar þess er fólk missir vinnu og kemst á vonarvöl fjárhagslega. Að sögn framkvæmdastjórans aukast líkurnar á skilnaði um 70 prósent eftir eins árs atvinnuleysi annars hjóna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×