Jón Gnarr stofnar stjórnmálaflokk 16. nóvember 2009 06:30 Vinir Jóns Gnarr geta hugsað sér til gott til glóðarinnar komist hann á þing.
Jón Gnarr hefur stofnað stjórnmálaflokk. Hann heitir Besti flokkurinn og Jóni er full alvara. „Mig hefur lengi langað til að hafa völd og góð laun. Góð leið til þess er að verða lýðræðislega kosinn," segir Jón, fullur einlægni. „Mig langar líka að komast í þá stöðu að ég geti hjálpað vinum mínum. Það eru endalaust margar leiðir til þess. Það má úthluta alls konar styrkjum og búa til hinar ýmsu nefndir. Fólk þarf svo ekkert endilega að mæta á fundi, en fær bara borgað." Jón veit að þessi tilgangur flokksins mun varla virka á kjósendur svo hann hefur búið til sannfærandi stefnuskrá. „Stefnuskrána fékk ég lánaða hjá öðrum stjórnmálaflokkum. Þarna er eitthvað um að bjarga heimilunum, að draga til ábyrgðar þá sem bera ábyrgð á hruninu og hlusta meira á konur, gamalmenni og aumingja. En þetta er auðvitað bara yfirvarp. Ég vona þó að fólk taki því ekkert of bókstaflega þótt ég segist ekki ætla að standa við kosningaloforðin." Jón setur stefnuna á að verða menntamálaráðherra. „Flestir vinir mínir eru að vinna í listum og menningu svo ég gæti haft áhrif á það hverjir fá styrki og fálkaorðu og hverjir fá að gera þátt á RÚV. Auk þess hefur mig lengi dreymt um að hafa aðstoðarmann. Ég held að það sé ógeðslega kúl." Jón safnar nú fólki í flokkinn af því hann vill ekki vera einn í honum „eins og hálfviti" og unnið er að því að setja upp heimasíðu. - drg
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Sjá meira