Sveitarfélög vilja fá endurgreiðslu 26. nóvember 2009 02:45
Sveitarfélögin fá væntanlega endurgreidda þá hækkun tryggingagjalds sem fellur á þau um áramótin. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að sambandið vilji að sveitarfélögin leggi út hækkað gjald en fái hækkunina endurgreidda úr ríkissjóði. Ráðgerð hækkun tryggingagjalds úr 7% í 8,6% um áramót mun kosta sveitarfélögin allt að tveimur milljörðum króna, að sögn Halldórs. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á laugardag að ríkisstjórnin myndi bæta sveitarfélögunum kostnaðarauka vegna tryggingagjalds. Þegar gjaldið var hækkað úr 5,34% í 7% sl. sumar jukust útgjöld sveitarfélaganna einnig um tvo milljarða. Auknar útsvarstekjur vegna útgreiðslu séreignarsparnaðar úr lífeyrissjóðum í kjölfar hrunsins vógu upp áhrif þeirrar hækkunar þetta árið. Ákveðið hefur verið að framlengja heimild til að greiða út séreignarsparnað og útsvar vegna þess muni skila sveitarfélögum 2,5 milljörðum í auknar tekjur. Halldór Halldórsson segir að þær tekjur vegi aðeins upp á móti hækkun tryggingagjaldsins úr 5,34% í 7%. Hækkunin um næstu áramót mun ekki núllast út með sama hætti. Sveitarfélögin treysti þess vegna á yfirlýsingar um að stjórnvöld muni bæta hækkunina um áramót sérstaklega og þá með endurgreiðslum en ekki í gegnum Jöfnunarsjóð.- pg
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Sjá meira