Húsmæður í skoskum smábæ brjálaðar út í Magnús Scheving 25. maí 2009 06:00 Var ekki á Skotlandi Magnús Scheving sendi ástralskan staðgengil til smábæjarins Hamilton en það vakti ekki mikla lukku hjá skoskum húsmæðrum sem hafði hlakkað til að sjá íslenska Íþróttaálfinn.
Skoskar húsmæðir í smábænum Hamilton á Skotlandi urðu heldur betur hvumsa þegar þær mættu með börnin sín og ætluðu að leyfa þeim að sjá hetjuna þeirra úr sjónvarpi; Sportacus eða Íþróttaálfinn. Samkvæmt skipulagðri dagskrá mikillar matarhátíðar átti Sportacus að mæta á svæðið og sýna listir sínar. Mæðurnar létu ekki rigningu á sig fá enda krakkarnir alveg óðir af spenningi yfir því að sjá íslensku ofurhetjuna. „Við urðum alveg rosalega reiðar þegar við sáum að þetta var ekki Magnus Scheving heldur einhver ástralskur táningur í ljótum búningi með yfirvaraskegg sem var alltaf að detta,“ segir Mairi Breen í samtali við staðarblaðið The Hamilton Advertiser. Breen bætir því reyndar við að krakkarnir hafi ekki getað greint muninn en mæðurnar hafi orðið virkilega sárar fyrir þeirra hönd, að þarna væri visvítandi verið að reyna að blekkja þau með augýsingum. Helst þótti henni súrt í broti að þurfa standa í grenjandi rigningu og hávaðaroki til að horfa á einhverja eftirlíkingu. En þótt krakkarnir hafi tekið Ástralanum vel voru mæðurnar ekki sama sinnis, því í ljós kemur að þær hefðu einnig verið spenntar fyrir að sjá hin spengilega Scheving hoppa um sviðið í smábænum. „Það er skárra að horfa á hann en Barney úr Flinstone‘s,“ segir Breen. Talsmaður hátíðarinnar vísaði öllum ásökunum um svik á bug, sagði ástralska unglinginn vera löglegan Sportacus samkvæmt vörumerkjaskráningu Latabæjar.- fgg
Mest lesið „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Lífið Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Hjarðhegðun Íslendinga Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Fleiri fréttir „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Sjá meira