Íslenskur vísindamaður í Nature 15. júlí 2009 21:14 Sigríður Rut Franzdóttir.
Nature, eitt virtasta tímarit heims, birti í vikunni grein eftir Sigríði Rut Franzdóttur, vísindamann við læknadeild Háskóla Íslands þar sem fjallað er um rannsóknir hennar á taugaþroskun samvkæmt tilkynningu frá skólanum. Rannsóknir Sigríðar Rutar beindust að taugakerfi ávaxtaflugunnar en slíkar rannsóknir hafa í gegnum tíðina varpað ljósi á grundvallarferla í öðrum lífverum, þar á meðal hjá mönnum. Þekking á þeim ferlum sem stýra þroskun og sérhæfingu taugastoðfruma er takmörkuð og því geta niðurstöður Sigríðar Rutar og annarra á svipuðum sviðum varpað ljósi á ýmsa sjúkdóma í taugakerfi, sérstaklega þá sem leggjast á taugaslíður eins og mænusigg (Multiple sclerosis, MS). Rannsóknir Sigríðar Rutar beindust að þroskun taugakerfisins og þeim þáttum sem stýra samskiptum taugafruma og stoðfruma. Í þeim hluta rannsóknarinnar sem nú er birtur í vefútgáfu Nature var hlutverk svokallaðra FGF vaxtarþátta (Fibroblast Growth Factors) í þroskun taugastoðfruma ávaxtaflugunnar kannað. Greinin sem Sigríður Rut vann að ásamt samstarfsfólki sínu við taugalíffræðistofnun háskólans í Münster, byggir á doktorsverkefni hennar sem unnið var undir leiðsögn Dr. Christian Klämbt. Meðal annars er sýnt fram á í greininni að tvær mismunandi FGF sameindir stýra þroskun frumanna í gegnum einn og sama viðtakann. Önnur þeirra stýrir frumufjölda og beinir stoðfrumunum á réttan stað en hin er tjáð í taugafrumunum og örvar stoðfrumurnar til að mynda einangrandi slíður um taugar. Sigríður Rut lauk B.Sc. gráðu í líffræði frá HÍ vorið 2000 og M.Sc. gráðu í heilbrigðisvísindum frá sama skóla árið 2004. Hún lauk doktorsnámi við háskólann í Münster haustið 2008 og starfar nú sem nýdoktor á Rannsóknastofu í stofnfrumufræðum við Lífvísindasetur læknagarðs þar sem hún rannsakar stofnfrumur lungna í tengslum við þroskun og lungnakrabbamein. Grein Sigríðar Rutar má nálgast á vefsvæði Nature tímaritsins.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira