Leikaralið Balta steinlá á Jónsmessumóti Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 24. júní 2009 14:29 Þeir Rúnar, Balti, Kjartan og Björn Thors steinlágu fyrir norðan.
Baltasar Kormákur smalaði saman hópi valinkunnra leikara til að taka þátt í Jónsmessumóti í knattspyrnu sem haldið er á Hofsósi ár hvert. Skemmst er að segja frá því að leikararnir steinlágu þrátt fyrir að vera með fyrrum atvinnu- og landsliðsmann í knattspyrnu innanborðs. „Við skitum hressilega á okkur," segir Baltasar Kormákur Baltasarsson, leikari og knattspyrnumaður með meiru. Baltasar fékk kollega sína úr leikarastéttinni til þess að koma norður á Hofsós og taka þátt í árlegu Jónsmessumóti í knattspyrnu þar í bæ. Baltasar hafði góða reynslu af mótinu en hann sigraði mótið árið 2007 ásamt gömlum kempum úr liði Neista. Hið sama var ekki uppi á teningnum núna. „Við komumst ekki einu sinni upp úr riðlinum," segir Baltasar. Liðið var þó ekki skipað neinum aukvisum. Meðal leikmanna voru menn á borð við Rúnar Frey Gíslason, Kjartan Guðjónsson, Björn Inga Hilmarsson, Björn Thors, Vigni Rafn Valþórsson og Pétur Marteinsson, fyrrum landsliðs- og atvinnumaður í knattspyrnu en hann var „pikkaður upp" á Búðardal á leiðinni norður. „Balti hafði allt aðra og stærri drauma fyrir mótið. Hann fór strax að tala um úrslitaleikinn. Fór að velta fyrir sér hvort hann yrði ekki örugglega spilaður á stærri velli og annað," segir Kjartan Guðjónsson leikari sem lék í stöðu hægri bakvarðar á mótinu. „Svo klúðraðist allt og menn voru farnir að öskra hver á annan." Staða hægri bakvarðar var þó ekki eina ábyrgðarstaðan sem Kjartan gegndi í þessari keppnisferð. Hann sá einnig um að ferja liðið í rútu norður en hann mun hafa verið sá eini með nógu gamalt ökuskírteini til að mega keyra rútu. „Já þetta voru einhverjar reglur sem breyttust '88 þannig að ég má keyra rútu," segir Kjartan. Hann kunni vel við hlutverk rútubílstjóra og lifði sig heldur betur inn í það. „Já já. Ég var skoðandi stóru rúturnar í Staðarskála. Gekk í kringum þær og sparkaði létt í dekkin. Svo bibaði ég á rúturnar sem við mættum þannig að ég var alveg kominn inn í þetta samfélag rútubílstjóra," segir Kjartan sem er sannfærður um að hann á eftir að keyra rútu aftur. „Já blessaður vertu. Ég er alltaf að skoða rútur á netinu. En næst þegar ég kem í Staðarskála vil ég frítt kaffi og jafnvel mat, ég er að koma með hellings viðskipti á staðinn," segir Kjartan léttur á því sem endranær. Þrátt fyrir skelfilega útreið leikaraliðsins í mótinu voru menn engu að síður í skýjunum með ferðina. „Já þetta var rosalega gaman. Frábært veður og mjög skemmtilegt."
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Sjá meira