Meirihlutinn í Grindavík sprunginn Valur Grettisson skrifar 14. apríl 2009 09:58 Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, Garðar Páll Vignisson, vildi starf skólastjóra, sem varð meirihlutastjórn að falli. „
Hún er bara sprungin," sagði bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í Grindavík, Sigmar Eðvarsson, um stöðu meirihluta bæjarstjórnar í bænum. Svo virðist sem meirihlutinn, sem samanstóð af Framsóknarflokknum og Samfylkingunni, sé einfaldlega sprunginn. Fyrstu teikn þess mátti sjá á bæjarstjórnarfundi bæjarins þann áttunda apríl en þá lagði Samfylkingin fram bókun um að þeir vildu ráða Garðar Pál Vignisson sem skólastjóra Hópsskóla. Þessu mótmæltu Framsóknarmenn og vildu fara eftir áliti Capacent og mati Fræðslu og uppeldisnefndar og ráða Maggý Hrönn Hermannsdóttur til verksins. Athygli vekur að Garðar Páll, sem Samfylking vildi sem skólastjóra, situr í bæjarstjórn auk þess sem hann er forseti bæjarstjórnar. Því vildi Samfylkingin ganga þvert á faglegt álit Capacent og ráða eigin mann til starfanna. Þessu hafnaði Framsókn með öllu á fundi bæjarstjórnar fyrir helgi. Sjálfstæðismenn lögðu fram tillögu um að fresta málinu og var hún samþykkt af Sjálfstæðismönnum og Framsókn. Samfylkingin sat hjá. Nú er meirihlutinn endanlega sprunginn að sögn Sigmars Eðvarssonar en hann segir að forsvarsmenn flokkanna munu hittast síðdegis og ræða um meirihlutasamstarf. „Við munum ræða við væntanlega samstarfsaðila í dag og innsiglum vonandi samstarfið síðar," segir Sigmar sem lýsir því einnig yfir að hann sé hneykslaður á tilraunum Samfylkingarinnar um að reyna að ráða Garðar gegn faglegu álitið Capacent. Þetta er í annað sinn sem meirihlutinn springur í Grindavík, en síðast slitnaði upp úr samstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar. Aðeins ár er eftir af kjörtímabilinu.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Fleiri fréttir Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Sjá meira