Línurnar lagðar í komandi kosningabaráttu 16. mars 2009 19:30 Svandís Svavarsdóttir
Þær Svandís Svavarsdóttir og Lilja Mósesdóttir sem höfnuðu í öðru og þriðja sæti í prófkjöri Vinstri grænna í Reykjavík eru greinilega byrjaðar að skipuleggja komandi kosningaslag. Í tölvupósti sem fréttastofa hefur undir höndum og þær sendu á samflokkssystkini sín kemur fram að mikilvægast sé að benda á það sem Viðskiptaráð, Sjálfstæðisflokkurinn, Heimdallur og allir hinir sögðu. Lilja sendir póst á samflokkssystkini sín þar sem segir að eftirfarandi línur hljóti að rata inn í allar sögubækur um bankahrunið mikla í október 2008. Línurnar eru úr u.þ.b ársgamalli skýrslu Viðskiptaráðs um samkeppnishæfni Íslands ef marka má orð Lilju. „Viðskiptaráð leggur til að Ísland hætti að bera sig saman við Norðurlöndin enda stöndum við þeim framar á flestum sviðum. Ísland ætti þess í stað að bera sig saman við þau ríki sem standa hvað fremst á hverju sviði fyrir sig" (bls. 22) Síðan lætur hún fylgja með stjórn Viðskiptaráðs og segir mörg goðin eiga þar sæti, t.d : Halla Tómasdóttir, Erlendur Hjaltason, Ingólfur Helgason, Halldór J. Kristjánsson, Þór Sigfússon, Lárus Welding, Róbert Wessman og Ari Edwald. Svandís svarar síðan pósti Lilju og segir þetta vera eitt af því sem þurfi að muna. „Kannski verður það mikilvægasti hlutinn af okkar kosningabaráttu að muna það sem þau sögðu, Viðskiptaráð, Sjálfstæðisflokkurinn, Heimdallur og allir hinir," segir Svandís og tekur þetta sem dæmi.
Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Sjá meira