Seðlabankastjóri sá skýrsluna ekki í apríl 19. janúar 2009 05:30 Ingimundur Friðriksson
Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri segir ekki rétt að hann hafi séð dökka skýrslu um ástand efnahagsmála eftir hagfræðingana Willem Buiter og Anne Sibert í apríl í fyrra, heldur um sumarið, í júlí. Hagfræðingarnir héldu því fram í Silfri Egils í gær að skýrslan, sem segir meðal annars að afar líklegt sé að illa fari í íslensku efnahagslífi, hefði verið send í Seðlabankann í apríl. Skýrslan komst í hámæli í október þegar Buiter sagði frá henni í grein í Financial Times og hefur hún verið kölluð „skýrslan sem var stungið undir stól". Spurður hvers vegna ekki hafi verið brugðist við skýrslunni, segist Ingimundur ekki hafa neitt um það að segja á þessu stigi. Seðlabankinn hafi skýrt sína afstöðu til skýrslunnar með nákvæmum hætti „í ritum okkar og ræðum og minnisblöðum sem eru á heimasíðu bankans." Ekki var í skjótu bragði að finna neina umfjöllun Seðlabankans um skýrsluna sem slíka á heimasíðu bankans í gærdag en bankastjórarnir hafa auðvitað rætt ýmsa gagnrýni sem kom fram í henni, svo sem um stærð bankakerfisins og gjaldeyrismál. „En það var svo margt sem var sagt á þessum tíma og ekki bara þetta. Þetta var skýrsla sem var pöntuð af Landsbankanum og ein af mörgum sem voru gerðar," segir Ingimundur. Nær væri að spyrja ráðamenn Landsbanka um skýrsluna, sem var ekki birt opinberlega. „Ég sá hana í júlí og við höfðum ekkert á móti því fyrir okkar leyti að hún yrði birt," segir hann. Spurður um þá gagnrýni hagfræðinganna að hér á landi sé gífurlegur skortur á upplýsingum til dæmis um skuldastöðu ríkis og banka, segist Ingimundur ekki telja að þetta sé rétt. Hér hafi jafnan verið mjög greiður aðgangur að talnalegum upplýsingum. Því var hann spurður hver nákvæmlega væri skuldastaða landsins, en Ingimundur vill ekki ræða það að svo stöddu. Hann bendir á að í síðustu viku hafi verið birtar tölur um brúttóskuldir ríkissjóðs. Þó sé ekki víst hverjar þær verði endanlega, því ekki er búið að ganga frá samningum um lántökur við erlend ríki. Um skuldir banka segir hann að þeir séu enn í greiðslustöðvun; verið sé að gera þá upp. Annars vilji hann ekki tjá sig um þessi mál. Fjármálaráðuneyti var einnig kynnt efni skýrslunnar, en ekki náðist í Árna M. Mathiesen í gær. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Sjá meira