Segir samþykkt Icesave munu minnka atvinnuleysi 16. júlí 2009 05:30 seðlabankastjóri Seðalbankinn telur að ríkissjóður standi undir þeim skuldbindingum sem Icesave-samningurinn leggur á hann. Hann telur ástandið verða mun betra að ári verði samningurinn samþykktur. fréttablaðið/gva
Ríkissjóður stendur vel undir þeim skuldbindingum sem Icesave-samningurinn leggur á herðar þjóðinni. Þetta kemur fram í umsögn Seðlabanka Íslands um málið. Seðlabankastjóri, Svein Harald Øygard, segir að verði Icesave samþykkt verði minna atvinnuleysi að ári og staða fyrirtækjanna betri. Það að fella samninginn komi Íslendingum ekki undan því að borga. Í umsögn bankans segir að gera megi ráð fyrir að í lok ársins 2015 verði búið að selja allar eignir gamla Landsbankans. Sé gert ráð fyrir 75 prósenta endurheimtum verði skuld íslenska ríkisins vegna samninganna 340 milljarðar króna. Sú upphæð samsvari 17 prósentum af áætlaðri vergi landsframleiðslu ársins 2009. Fyrsta greiðslan, árið 2016, mun nema 3,1 prósenti af vergri landsframleiðslu en sú síðasta, 2023, 1,4 prósentum. Øygard segir að sú upphæð jafngildi því að sett verði til hliðar 1,2 prósent af vergri landsframleiðslu ár hvert meðan á samningstímanum stendur. Líkt og Fréttablaðið greindi frá á þriðjudag reiknar bankinn með að erlendar skuldir þjóðarinnar séu 200 prósent af vergri landsframleiðslu árið 2009, en þá reiknar bankinn með að hún verði 1.427 milljarðar. Erlendar skuldir eru þá um 2.800 milljarðar. Seðlabankinn tekur fram að mat hans er mörgum óvissuþáttum háð. Óvissa sé um þróun hagvaxtar, tekjuöflun ríkissjóðs og útflutningstekjur, sem og gengi krónunnar, að ónefndu endurheimtuhlutfalli eigna Landsbankans ytra.kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira