Hlaut viðurkenningu sem fullgild alþjóðleg rústabjörgunarsveit 13. september 2009 11:33 Liðsmenn alþjóðabjörgunarsveitarinnar voru að vonum ánægðir með niðurstöðuna.
Alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar hlaut í gær formlega vottun sem fullgild alþjóðleg rústabjörgunarsveit frá samtökum alþjóðlegra rústabjörgunarsveita sem starfa undir hatti Sameinuðu þjóðanna. 10 manna úttektarteymi frá samtökunum hefur undanfarna daga verið með sveitinni á strangri þriggja daga æfingu á Gufuskálum á Snæfellsnesi sem lauk í gær. Umsögnin sem sveitin hlaut frá úttektarteyminu að æfingu lokinni var afar góð, að fram kemur í tilkynningu. Þar sagði meðal annars að sveitin hafi sýnt mikla fagmennsku í öllum verkum sem leiddi til góðrar frammistöðu. Einnig var tekið eftir afar öguðum vinnubrögðum og góðum anda innan hennar. Frá því að íslenska alþjóðabjörgunarsveitin var stofnuð árið 1999 hefur hún ýmist sinnt útköllum eða verið í viðbragðsstöðu vegna náttúruhamfara á borð við jarðskjálfta, flóð og fellibyl sem og hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjunum. Sveitin fór í sitt fyrsta útkall árið 1999 þegar að hún fór til Tyrklands í kjölfar jarðskjálftanna sem urðu þar en þá létust meira en 18 þúsund manns. Árið 2003 fór sveitin til Alsír í kjölfar jarðskjálfta og í byrjun árs 2004 var farið til Marokkó. Auk þess fóru fjórir félagar úr ÍA í sjúkraflug til Tælands í byrjun árs 2005 eftir flóðin í Indónesíu. Sveitin var sett í viðbragðsstöðu eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum fyrir átta árum og fellibylinn Katrínu og einnig þegar jarðskjálftar urðu í Pakistan 2006 og í Kína 2008.
Tengdar fréttir Þriggja daga æfingu lokið Í hádeginu lauk æfingu íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar sem staðið hefur yfir síðan á fimmtudag á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Viðstaddir æfinguna voru 10 aðilar frá ISARAG, sem eru samtök alþjóðlegra rústabjörgunarsveita sem starfa undir hatti Sameinuðu þjóðanna. Hlutverk þeirra var að meta getu sveitarinnar og í framhaldinu að veita henni vottun sem fullgild alþjóðleg björgunarsveit. 12. september 2009 13:29 Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Sjá meira
Þriggja daga æfingu lokið Í hádeginu lauk æfingu íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar sem staðið hefur yfir síðan á fimmtudag á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Viðstaddir æfinguna voru 10 aðilar frá ISARAG, sem eru samtök alþjóðlegra rústabjörgunarsveita sem starfa undir hatti Sameinuðu þjóðanna. Hlutverk þeirra var að meta getu sveitarinnar og í framhaldinu að veita henni vottun sem fullgild alþjóðleg björgunarsveit. 12. september 2009 13:29