Innlent

Hlaut viðurkenningu sem fullgild alþjóðleg rústabjörgunarsveit

Liðsmenn alþjóðabjörgunarsveitarinnar voru að vonum ánægðir með niðurstöðuna.
Liðsmenn alþjóðabjörgunarsveitarinnar voru að vonum ánægðir með niðurstöðuna.
Alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar hlaut í gær formlega vottun sem fullgild alþjóðleg rústabjörgunarsveit frá samtökum alþjóðlegra rústabjörgunarsveita sem starfa undir hatti Sameinuðu þjóðanna. 10 manna úttektarteymi frá samtökunum hefur undanfarna daga verið með sveitinni á strangri þriggja daga æfingu á Gufuskálum á Snæfellsnesi sem lauk í gær.

Umsögnin sem sveitin hlaut frá úttektarteyminu að æfingu lokinni var afar góð, að fram kemur í tilkynningu. Þar sagði meðal annars að sveitin hafi sýnt mikla fagmennsku í öllum verkum sem leiddi til góðrar frammistöðu. Einnig var tekið eftir afar öguðum vinnubrögðum og góðum anda innan hennar.

Frá því að íslenska alþjóðabjörgunarsveitin var stofnuð árið 1999 hefur hún ýmist sinnt útköllum eða verið í viðbragðsstöðu vegna náttúruhamfara á borð við jarðskjálfta, flóð og fellibyl sem og hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjunum.

Sveitin fór í sitt fyrsta útkall árið 1999 þegar að hún fór til Tyrklands í kjölfar jarðskjálftanna sem urðu þar en þá létust meira en 18 þúsund manns. Árið 2003 fór sveitin til Alsír í kjölfar jarðskjálfta og í byrjun árs 2004 var farið til Marokkó. Auk þess fóru fjórir félagar úr ÍA í sjúkraflug til Tælands í byrjun árs 2005 eftir flóðin í Indónesíu. Sveitin var sett í viðbragðsstöðu eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum fyrir átta árum og fellibylinn Katrínu og einnig þegar jarðskjálftar urðu í Pakistan 2006 og í Kína 2008.




Tengdar fréttir

Þriggja daga æfingu lokið

Í hádeginu lauk æfingu íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar sem staðið hefur yfir síðan á fimmtudag á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Viðstaddir æfinguna voru 10 aðilar frá ISARAG, sem eru samtök alþjóðlegra rústabjörgunarsveita sem starfa undir hatti Sameinuðu þjóðanna. Hlutverk þeirra var að meta getu sveitarinnar og í framhaldinu að veita henni vottun sem fullgild alþjóðleg björgunarsveit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×