Þúsundir fastar í rústum húsa 2. október 2009 05:00 Eitt af ónýtu húsunum í Padang. Meira en 500 byggingar eyðilögðust í borginni.fréttablaðið/AP
Björgunarfólk á Indónesíu leggur nótt við dag til að reyna að bjarga fólki úr rústum húsa sem hrundu þegar tveir harðir jarðskjálftar urðu þar á miðvikudag. Tala látinna var í gær komin yfir 1.100, en líklegt þótti að hún ætti eftir að hækka talsvert. Þúsundir manna eru taldar grafnar undir húsarústum. Ekki er vitað hve margir eru á lífi undir rústunum eða hve lengi þeir halda út. Verst virðist ástandið vera í borginni Padang á eyjunni Súmötru. Þar eyðilögðust meira en 500 byggingar, þar á meðal skólar, sjúkrahús og hótel. „Við skulum ekki vanmeta skaðann. Búum okkur undir það versta. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að bjarga fólki,“ sagði Susilo Bambang Yudhoyono forseti í höfuðborginni Jakarta áður en hann flaug til Padang. Þar í borg lögðu björgunarmenn mikla áherslu á björgunarstarf í fjögurra hæða steinsteyptu húsi, sem hrundi í jarðskjálftanum. Í húsinu voru þrjátíu börn í skólatímum. Fjögur þeirra höfðu fundist á lífi, en sex voru látin og tvísýnt um örlög hinna. Jarðskjálfti á miðvikudag mældist 7,6 stig og átti upptök sín um það bil 240 kílómetra suður af Padang, en þar búa um 900 þúsund manns. - gb
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira