Innlent

Leit hætt: Málið rannsakað sem mannshvarf

Aldís Westergren hefur verið saknað í tæpar tvær vikur.
Aldís Westergren hefur verið saknað í tæpar tvær vikur.

Leit að Aldísi Westergren er formlega hætt en málið er komið á borð til rannsóknarlögreglunnar. Málið er rannsakað sem mannshvarf og er enn leitað vísbendinga um ferðir Aldísar. Þess vegna biður lögreglan enn um alla þá sem kunna að hafa orðið hennar var um að hafa samband við lögregluna.

Hafi einhver orðið hennar var er viðkomandi bent á að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í 444-1000.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×