Svelgur í Sigöldu og öfugur foss 18. júlí 2009 19:02
Risastór svelgur og öfugur foss sjást nú við Sigöldu en þar stendur yfir fyrsta meiriháttar viðhald á virkjuninni frá því hún var gangsett fyrir þrjátíu og tveimur árum. Sigölduvirkjun hefur reynst hin mesta gullnáma á starfstíma sínum, hún útrýmdi olíukyndingunni á sínum tíma og hefur síðan skilað um áttatíu milljörðum króna í tekjur fyrir þjóðarbúið. Er vann ég við Sigöldu, meyjarnar mig völdu, var sungið í þekktu dægurlagi. Þá ríkti rómantískur blær yfir Sigölduframkvæmdunum, sveitapiltar sneru moldríkir heim, umvafðir kvenfólki, ef marka má texta Þorsteins Eggertssonar sem Engilbert Jenssen söng árið 1975.Og nú er aftur byrjað að vinna við Sigöldu. Virkjunin hefur verið stöðvuð, og miðlunarlónið og hinn risastóri inntaksskurður virkjunarinnar tæmd til að menn komist að lokubúnaði til að sandblása og mála. Úr skurðinum er verið fjarlægja grjót og annar jarðveg, sem hrunið hefur niður, utan á Sigöldustíflu er verið að styrkja malbikskápuna og inni í stöðvarhúsinu er verið að yfirfara aflvélarnar þrjár. Mannvirkin eftir allan þennan tíma fá toppeinkunn og hafa staðist vel, að sögn Daða Viðars Loftssonar, vinnslustjóra Landsvirkjunar á Þjórsársvæðinu.Vatni Tungnár er hleypt úr uppistöðulóninu um sérstaka botnrás undir stífluna og myndast við það ansi magnaður svelgur þegar vatnið sogast undir. Ekki er síðra fyrirbærið sem myndast neðan stíflunnar þegar Tungnaá þeytist af öllu sínu afli út úr botnrásinni tólf til fimmtán metra upp í loftið, og myndar einskonar öfugan foss til að draga ír krafti vatnsins áður en það skellur á gljúfrinu fyrir neðan.Sigalda var fyrsta hálendisvirkjun Íslendinga. Hún var byggð til að knýja Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga og til að skipta olíukyndingu húsa yfir í rafhitun. Hún hefur því bæði skapað gjaldeyri og sparað gjaldeyri á starftíma sínum og hefur skilað tvöfalt til þrefalt meiri tekjum en sem nemur stofnkostnaði. Og þótt þarna vinnir engir starfsmenn að staðaldri mun Sigalda halda áfram að skila tveim til þrem milljörðum króna árlega næstu áratugi í þjóðarbúið.Karlarnir fimmtíu sem vinna þarna tímbundið í sumar kannast hins vegar ekkert við að meyjarnar velji þá sérstaklega, - það eru miklu frekar flugurnar sem sækja á þá.
Mest lesið Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Sjá meira